Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 46
4. mynd. Nýjugíneumjónefur eða maðkígull, Zaglossus bruijni.
(Nowak 1990.)
mannabyggð virðast
báðir mjónefimir samt
víða allalgengir, þótt
lítið fari fyrir þeim.
Astralíumjónefurinn
lifir í margs konar um-
hverfi en nýjugíneu-
mjónefur einkum í röku
skóglendi til fjalla.
Fátt er vitað um ævi-
líkur nefdýra í náttúr-
unni en heimildir em úr
dýragörðum um 17 ára
breiðnef, þrítugan
maurígul og fimmtug-
an maðkígul.
verpur kvendýrið einu eggi. Þá hefur
myndast húðfelling á kvið verðandi móður,
og svo virðist sem hún hnipri sig saman og
verpi beint í hana. Um 10 dögum síðar skríð-
ur örsmár ungi úr egginu og sýgur móður-
mjólkina úr hárskúfum inni í pokanum, þar
sem móðirin hefur enga spena.
Þegar ungarnir eru um átta vikna og 15 til
21 cm fara þeim að vaxa broddar. Þá flytur
móðirin þá úr pokanum í hreiður og kemur
annað veifið til þeirra og gefur þeim mjólk
þar til þeir eru sjálfbjarga, trúlega um þremur
mánuðum eftir að þeir fara úr pokanum.
Nýjugíneumjónefur eða maðkígull, Za-
glossus bruijni (4. mynd), lifir einungis á
Nýju-Gíneu. Hann er stærri en maurígullinn,
allt að 80 cm, einnig nærri rófulaus en með
færri, snubbótta brodda og lengra, bogið
trýni. Tungan er lengri en á maurígli og al-
sett hvössum broddum. Aðalfæðan virðist
vera ánamaðkar.
Æxlun, klak eggja og eldi unga er áþekkt
og hjá maurígli. Fátt er samt vitað um
tímasetningu og lengd einstakra tímaskeiða.
Raunar ber heintildum ekki heldur saman um
þetta varðandi maurígul, svo rétt er að taka
með fyrirvara þeim tölum sem nefndar eru
hér að framan.
Menn hafa gengið allnærri stofnum mjó-
netja með veiðum og eyðingu búsvæða.
Þrátt fyrir friðun veiða frumbyggjar Nýju-
Gíneu maðkígul enn til matar. En fjarri
■ POKADÝR
Ólfkt nefdýrunum ala pokadýrin lifandi unga
en þeir fæðast mjög vanþroskaðir og ná
síðan, á spena móðurinnar, ámóta þroska og
fóstur fylgjudýra öðlast í móðurkviði. í legi
pokadýrs er engin eða mjög óþroskuð
fylgja, þannig að fóstrið fær litla eða enga
næringu úr blóði móðurinnar en lifir á
forðanæringu úr egginu. Meðgöngutíminn
er líka stuttur, 8-40 dagar.
Út úr leginu liggja tvenn leggöng (I.
mynd, b), og lintur karldýra flestra tegunda
er klofinn og fer sín greinin inn í hvor leg-
göng við mökun. Þriðju leggöngin, niður úr
miðju legi, eru fæðingargangur, sem opnast
ekki fyrr en við fyrsta got. Hjá sumum
tegundum pokadýra grær hann saman og
lokast að goti loknu og endurnýjast þegar
hans verður næst þörf, en hjá öðrum er hann
varanlegur.
Kvendýr flestra tegunda hafa húðfellingu
eða poka sem hylur spenana. Þar hafast
ungarnir við, einnig um nokkurt skeið eftir
að þeir losna af spena, en framan af er
unginn fastur við hann og verður ekki
losaður þaðan lifandi. Á uppréttum poka-
dýrum, eins og kengúrum og klifurdýrum,
opnast pokinn að ofan, en á ýmsum
kvikindum sem ganga á fjórum fótum eða
grafa sig íjörð snýropið aftur. Meðal sumra
tegunda rýrnar pokinn og hverfur milli þess
44