Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 23

Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 23
VETRARfÆÐA BRANDUGLU (ÁSIO FLAMMEUS) ÓLAFUR K. NIELSEN Fyrsta brandugluhreiðrið sem sögur fara af hér á landi fannst sumarið 1912 (Finnur Guðmundsson 1951). Branduglan breiddist út um landið á nœstu áratugum og er nú strjáll varp- fugl í öllum landshlutum (Hagemeijer og Blair 1997). Engar rannsóknir hafa verið gerðar á vistfræði branduglunnar á íslandi (I. mynd). Þetta er þó _________forvitnilegt viðfangsefni í ljósi tess sem vitað er um lífshætti hennar erlendis. Utan fslands er hún útbreiddur varpfugl í Norður-Ameríku, Evrópu og Asíu og finnst einnig í Suður-Ameríku. Varp- útbreiðsla hennar í Evrópu nær allt norður á 70°N. Aðalfæða branduglunnar í Evrópu og víðast hvar annars staðar eru stúfmýs (Microtinae).1 Stofnar stúfmúsa eru mjög breytilegir að stærð og þéttleiki og varpafkoma branduglunnar ræðst rnjög af ástandi músastofna. Aðlögun brand- uglunnar að þessum Iífsskilyrðum felst m.a. í því að ungar og fullorðnir fuglar sýna litla átthagatryggð. Sé fæðuskorlur í þeirra Ólafur K. Nielsen (f. 1954) lauk B.S.-prófi í líffræði frá Háskóla Islands 1978 og Ph.D.-prófi í dýravistfræði frá Cornell-háskóla í Bandarikjun- um 1986. Ólafur starfaði hjá Líffræðistofnun Há- skólans 1986-1993 og starfar nú hjá Náttúru- fræðistofnun íslands. heimkynnum fara þær á flakk og setjast að á svæðum þar sem gnægð er stúfmúsa. Þessi mikli hreyfanleiki branduglunnar hefur væntanlega auðveldað landnám hennar hér á landi. En hvers konar land fann hún? Eina músin sem er algeng í úthaga á íslandi er hagamús (Apodemus sylvaticus) (Karl Skírnisson 1993) (2. mynd). Lítið er vitað um þéttleika hagamúsa í úthaga hér á landi og stofnbreytingar. Miðað við takmarkaðar upplýsingar héðan og það sem þekkt er í Evrópu er þó ólíklegt að hagamýs nái nokkru sinni þeim þéttleika sem sumar tegundir stúfmúsa ná í sínum heimkynnum. í þessu ljósi er fróðlegt að skoða hvað branduglur éta á íslandi. Eru þær músaætur eða éta þær fugla? Hér verður fjallað um vetrarfæðu branduglunnar. Auðvelt er að kanna fæðuhætti ugla. Það eina sem vita þarf er hvar þær sofa. Svefnstaðurinn er heimsóttur og ælum safnað. Branduglan, likt og aðrar uglur, ælir beinum, fiðri og hárum þeirra dýra sem hún étur. Ælan er þéttur, ílangur böggull. Meðalstærð ælu er 45 x 22 mm. Með því að leysa æluna upp í vatni má skoða nánar hár og bein og þannig greina hvaða tegundir er um að ræða og hve margir einstaklingar voru étnir (Mikkola 1983). 1 Allar upplýsingar um lífshætti branduglunnar eru fengnar frá Cramp (1985), Mikkola (1983) og Korpimaki og Norrdahl (1991), um ítarlegri heirn- ildir er vísað í þessi rit. Náttúrufræðingurinn 67 (2), bls. 85-88, 1997. 85
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.