Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 83
Hafa skal það sem sannara rjeynist
í Náttúrufræðingnum 28. árg. 1958, 2. hefti,
bls. 108, birtist ljósmynd af framhlaupi í
Kollafirði í Strandasýslu.
Ég komst fyrst í kynni við Náttúru-
fræðinginn uin 1971 og rakst þá strax á þessa
mynd og þótti hart að kannast ekkert við
landslagið. Ég er nefnilega þaulkunnugur í
Kollafirðinum. Var þar t.d. 6 sumur „í sveit“
fyrir fermingu og hef síðan í hálfa öld átt þar
leið um nokkrum sinnum flest ár. Ég svip-
aðist um eftir þessuin staðháttum næstu 10-
12 árin, en fann aldrei neitt. Myndin gat ekki
verið úr Kollafirðinum. En hvaðan var hún?
Ég fann hjá mér þörf til að komast til botns í
þessu og láta myndarhöfundinn vita af
misrituninni, hvernig svo sem í henni lægi.
Bókin „Myndir úr Strandasýslu“ (1962)
eftir Tryggva Samúelsson hefur legið uppi í
hillu hjá mér síðan hún kom út. Ég fletti
henni oft. Kvöld eitt árið 1982 var ég kominn
að bls. 29 í bók Tryggva. Blasir þar við (efri
mynd) Eyrarfjall í Bitru ineð myndarlegu
framhlaupi í mlðri' hlíð, gegnt bænum
Sandhólum. Ég fletti af rælni upp á Nfr.-
myndinni til samanburðar. Mér fannst
myndirnar svo sem ekki ósvipaðar, en ekkert
meira.
Ég vildi kanna málið betur á vettvangi. Fór
að hafa myndavél meðferðis á flakki mínu.
Stundum vildi þó gleymast að taka hana upp
fyrr en Bitran var að baki, en oftar voru
skilyrði til myndatöku slæm. Loks nú 1997
átti ég leið norður á Strandir og náði skýrri
mynd í fegurstu haustblíðu. Hún sýnir
Eyrarfjallið ineð framhlaupinu og þjóð-
veginn þvert yfír Bitruna (Sandhólabærinn
er nokkuð út úr myndinni t.v.). Ég legg
inyndina hér með. Sé hún borin saman við
Nfr,- myndina fer varla milli mála að báðar
eru af sama fyrirbærinu. Mynd Tryggva er
viðbótarsönnun fyrir mér. A henni sést
Sandhólabærinn í forgrunni og sýnir alla
afstöðu.
Með því að samband verður ekki lengur
haft við myndarhöfundinn í Nfr., sem áður
getur, sendi ég blaðinu þessar vangaveltur
mínar, ef ástæða þykir til að leiðrétta textann
undir myndinni.
Með kveðju,
Óli E. Bjömsson
Laugarbraut 27
300 Akranesi.
145