Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 12
Fjöldadauði síldar hefur verið rakinn til
eiturefnis svifþörungsins Alexandrium
tamarense og er talið að smá krabbadýr hafi
nærst á svifþörungnum og síðan verið étin
af síldinni (White 1977, 1980). Eitraðir
svifþörungar geta einnig drepið fisklirfur.
Dæmi eru frá Kanada og Noregi um að
fisklirfur sem nærðust á A. tamarense hafi
drepist og er talið að ekki þurfi nema eina
þörungafrumu til að drepa hverja lirfu (Dahl
1993).
Hér á eftir verður getið þeirra skaðlegu
svifþörungategunda sem vitað er um að
valdið hafa dauða eldisfisks á íslandi.
Heterosigma akasiwo
Blómi svifþörungsins Heterosigma akas-
iwo (6. mynd) í Hvalfirði í lok maí 1987 olli
dauða 9500 laxfiska í fiskeldisstöð á
staðnum. Sjórinn litaðist rauðbrúnn af völd-
um þörungsins og var fjöldinn á nálægu
svæði 570.000 frumur/lítri af sjó. Umhverfis-
skilyrði í Hvalfirði á þessum tíma voru
greinilega hentug fyrir fjölgun þörungsins
þar sem sjórinn var lagskiptur vegna upp-
hitunar og bjart var í veðri (Guðrún G.
Þórarinsdóttir 1987).
H. akasiwo hafði ekki fundist hér við land
áður (greint af Tangen í Noregi 1987) en
þörunginn er að finna um allan heim. Hann
hefur valdið dauða eldisfisks í Japan,
6. mynd. Heterosigma akasiwo, (Hada)
Hada, (lengd 1 l-25iim, breidd 8-13/Jin).
Kanada, írlandi, Skotlandi og Færeyjum og
einnig hefur fundist töluvert af honum í
sjónum við Danmörku (Bjergskov o.fl.
1990). Eituráhrif H. akasiwo eru þau að
fiskurinn kafnar vegna mikillar slím-
myndunar og skaða í tálknavef.
Anabaena flos-aqua‘
Um miðjan júlí 1991 olli blómi blágræn-
þörungsins Anabaena flos-aqua (greint af
Tornbjörn Johansson í Noregi) dauða 3-4
tonna af silungi í eldi í Fljótum í Skaga-
firði. Sjó var dælt af fjögurra metra dýpi
þegar eitrunarinnar varð vart og var þá
sjávarhiti óvenjuhár (12-14°C) og selta lítil.
7. mynd. Keðjur af Anabaena flos-aqua
Brébisson ex Bornet et Flahault (lengd
frumu 4-11 jjm). Mynd: GunnarS. Jónsson.
A. flos-aqua (7. mynd) er algengur
svifþörungur í ferskvatni en finnst einnig í
sjó. Eitranir af völdum þessa þörungs hafa
valdið dauða fiska, fugla og spendýra um
allan heim (Bjerskov o.fl. 1990).
Alexandrium tamarense = Goniaulax
EXCAVATA
í júlí 1991 kom upp þörungablómi í Eski-
firði sem rekja mátti til blóma skoruþör-
ungsins Alexandrium tamarense (greint af
Tornbjöm Johansson í Noregi). Fiskur,
alls 25 tonn, drapst í tveimur eldisstöðvum.
Þetta gerðist á heitu og sólríku tímabili og
mældist yfirborðshiti sjávar 15-16°C.
Algengast er að A. tamarense (3. mynd)
valdi PSP-eitrun í skelfiski en dæmi er um
1 morþörungur (Helgi Hallgrímsson)
74