Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 67

Náttúrufræðingurinn - 1997, Blaðsíða 67
Rannsóknir- EILÍF LEIT AÐ ÞEKKINGU STEFÁN ARNÓRSSON meira en 60 ár hefur Nátt- úrfræðingurinn verið vettvangur almenningsfræðslu unt náttúru- fræði þótt í honum hafi einnig birst mikill fjöldi greina um niðurstöður margþættra rannsókna sem varla eru að- gengilegar eða skiljanlegar öðrum en þeim sem hafa nokkra kunnáttu á þeim sérsviðum náttúrufræðinnar sem viðkomandi greinar fjalla um. Sitt sýnist hverjum um birtingu slíkra greina. Stefna núverandi ritstjórnar mun vera sú að leggja áherslu á stuttar greinar sem eru áhugaverðar leikmönnum. Sá greinarstúfur sem hér birtist uppfyllir varla þau skilyrði að vera tiltölulega stuttur og efnið sem fjallað er um varðar tæplega heldur almenningsfræðslu um náttúrufræði. En þar sem Náttúrufræðingurinn hefur alla tíð verið samofinn rannsóknum í náttúru- fræðum á íslandi vona ég að hin almenna umræða um rannsóknir, sem hér fer á eftir, vekji lesendur hans til umhugsunar um eðli þeirra, tilgang og notagildi. Stetan Arnórsson (f. 1942) lauk B.S.-prófi í jarðfræði frá Edinborgarháskóla 1966 og doktors- próft í hagnýtri jarðefnafræði frá Imperial College í London 1969. Hann starfaði við jarðhitadeild Orkustofnunar á árunum 1969-1978 en síðan við Háskóla Islands, fyrst sem dósent og síðar sem prófessor. Stefán hefur unnið víða erlendis sem ráðgjafí á' sviði jarðhita. ■ HVAÐ er rannsókn? Orðið rannsókn er samsett orð, úr rann og sókn. Rann merkir hús og sókn það að sækja einhvern til saka. Upphafleg merking orðsins er að gera húsleit hjá einhverjum þeim sem grunaður er um saknæmt athæfi, þjólnað. Á ensku er til sögnin „ransack“ og merkir hún einmitt að gera rækilega leit í húsi, einkum að stolnum munum. Mér er ókunnugt um hvenær farið var að nota orðið rannsókn í þeirri merkingu sem „research“ hefur á ensku, en það orð er sömu merkingar og Forschung á þýsku og forskning á skandinavískum málum. Enska orðið re- search er ættað úr frönsku. í bókstaflegri merkingu þýðir orðið research ítarleg leit, síleit. Re- er forskeyti sem merkir endur-, aftur-, eins og sí (t.d. sífelldur) og ei (t.d. ei- lífur, Eiríkur) í íslensku, en search merkir jú leit. Orðið vísindi er yfirleitt talið sömu merkingar og enska orðið „science“. Vísindi merkir skipuleg þekking. Áður fyrr var orðið einkum bundið við raunvísindi en á síðari árum hefur merking þess víkkað. í bók sinni Pælingum hallast Páll Skúlason, prófessor í heimspeki, að því að vísindaleg hugsun sé sömu merkingar og gagnrýnin hugsun og alls ekki bundin við raunvísindi. Eg tek undir viðhorf Páls í þessum efnum. Náttúrufræðingurinn 67 (2), bls. 129-140, 1997. 129
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.