Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 29

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 29
tækni hafi breiðst út frá bökkum Oxusfljóts sem nú heitir Amú-Darja og rennur úr suðaustri í Aralvatn. t 4. mynd. Krossfarinn Ríkarður Ijónshjarta, 1157-1199 (The Economist). kosið að fara í stríð í hervögnum en á hest- baki. Og hervagnarnir voru skelfileg vígtól (2. mynd). Af ritum um sigra Sanheríbs Ass- yríukonungs yfir Elömum og Kaldeum áætl- ar Keegan að tíu hervagnar, hver með tveim- ur stríðsmönnum vopnuðum spjótum og bogum, hafi á tíu mín- útum lagt 500 fjandmenn að velli. Upphaflega voru vagnarnir notaðir til að flytja menn á víg- völlinn fremur en að úr þeim væri barist. Voru þá tveir í vagni, her- maður sem hljóp af vagninum til orrustu og ekill sem beið á meðan álengdar. Hugsast getur að reið- hestar hafi líka verið notaðir til að flytja hermenn til orrustu áður en mönnum lærðist að sitja þá í bardaga, líkt og hestar víkinga löngu síðar. Keegan telur að fyrir rúmum þremur árþúsundunt hafi hrossa- ræktendur fengið fram nógu öfl- uga hesta til að bera riddara með alvæpni og að þessi bylting í her- ,,,v,í^' Á allt að tveggja metra háum hestum gnæfðu riddararnir yfir fótgöngulið og her- menn í stríðsvögnum og slógu, hjuggu, stungu og skutu með gaddakylfum, sverð- um, öxum, spjótum, lensum, bogum og síðar byssum. Hrossin klifu torfærur og óðu og syntu fallvötn sem enginn stríðsvagn komst yfir. Þetta var bylting í stríðsrekstri (3. mynd). Bylgjur hermanna á hestbaki flæddu yfir Evrópu úr austri: Húnar, Magyarar, Mong- ólar og Tyrkir fluttu með sér dauða og tor- tímingu. Að sjálfsögðu námu heimamenn brátt þessa nýju hertækni. ístaðið, sem talið er upprunnið á gresjum Asíu á annarri öld f.Kr. eða þar um bil, barst til Evrópu snemma á miðöldum og gerði riddurum kleift að beita lensum og þungum sverðum og bera öflugri brynjur en áður. Riddarar miðalda í Evrópu voru þrautþjálf- aðir og vel búnir hermenn í þjónustu kon- unga eða háaðals. Margir voru aðalbornir Miðaldariddarar við burtreiðar (Der Spiegel). BLÓMASKEIÐ RIDDARANNA 91

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.