Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 40

Náttúrufræðingurinn - 1997, Side 40
Skálarbotn j -J Htauphorn - -- " Fallhorn^ § Hlaupiengd ^ ' / Hædiandbrekku - / — ^ ^ i "" ] Htauphorn 1 P j Fátiherrr '' Htauplengd 4. mynd. Hlauphorn, skýringarmynd úr Berghlaupum Ólafs Jónssonar. — Slide angle. jafn lágt hlauphorn, en þau nálgast það að vísu. Vatnsdalshólar hafa hlauphornið 7,5°, Þorbrandsstaðahólar í Langadal 9,0° og Hraun í Öxnadal 9,5° (1. tafla). Rannsóknir erlendis frá sýna að efnismiklar skriður geta náð þessu horni og má sem dæmi nefna Blackhawk-hlaupið í Mojave-auðninni austur af Los Angeles. Hlauphorn þess er rúmar 6°. (Eins og sjá má á þessari upptalningu hefur greinarhöfundur ekki látið sannfærast af röksemdum Ágústs Guðmundssonar um að Vatnsdalshólar séu ekki berghlaup.) Hraði hefur áhrif á hlauphornið; skriða sem fer hratt niður fjallshlíð kemst yfirleitt lengra út á undirlendið og hefur lægra hlauphorn en sú sem fer hægt. Það er viðnámið í undirlagi hlaupsins sem ræður mestu um hraðann og þar með hlauphornið. Ef viðnámið er mikið verður hlauphornið stórt en ef það er lítið verður hlauphornið einnig lítið. Sérfræðingar um berghlaup hafa lengi deilt um hvað ráði viðnámi undir- lagsins. Margir hallast að því að fínmulið berg í bland við vatn neðst í berghlaups- urðinni myndi einskonar smurningu sem hlaupið renni á. Því fínna sem þetta smurn- ingslag verður og betur vatnsblandað því lengra rennur urðin. í Loðmundarskriðum er mikið af súru bergi, bæði líparíthrauni og gjósku. Súra bergið er molnunargjarnara en basískt berg og er því gott hráefni í smurn- inguna sem þurfti til að fleyta hlaupinu þá furðumiklu vegalengd sem það fór. ■ ALDUR LOÐMUNDARS KRIÐNA Að Tómasi Tryggvasyni og Hawkes undan- skildum hafa allir talið að Loðmundarskriður væru ung jarðmyndun. Þorvaldur Thorodd- sen veitti því strax athygli að urðin lá ofan á jökulurð og strandmyndunum frá ísaldar- lokum. Ólafur Jónsson bendir einnig á ýmis atriði sem sýna lágan aldur, svo sem hve brotsárið er lítið veðrað og illa gróið og jarðvegur á urðinni þunnur. Ljósu Heklu- öskulögin H3 og H4 sjást víða í jarðvegs- sniðum í Loðmundarfirði en á urðinni sjást þau ekki. Stór björg úr tiltölulega auðveðruðu efni liggja heilleg og óbrotin vítt og breitt. I mörg þúsund ára gömlu hlaupi væru þau öll meira eða minna molnuð. 102

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.