Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 47

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 47
2. mynd. Við rannsóknaveiðar í Mjóavatni 1989. - Net fish- ing in Lake Mjóavatn. Ljósm/photo: Guðni Guðbergsson. vitað hversu víðtæk þessi áhrif myndu verða né hverskonar. Þá var gert ráð fyrir að vötn á Auðkúlu- heiði sem eru á veituleið frá miðlunarlóni að inntaks- lóni yrðu fyrir röskun- aráhrifum. Nokkrar veiði- nytjar voru og eru í vötnuin á Auðkúluheiði, einkum lagneta- og gildruveiði en einnig stangveiði. Hvorki afli né veiðiástundun hafa verið skráð. Markmið þeirra rannsókna er hér greinir frá var að rannsaka fiskstofna vatna á veitu- leiðinni, bæði fyrir og eftir virkjun, til að meta hvort og á hvaða hátt framkvæmdir kynnu að hafa áhrif á fisk- stofnana með tilliti til nýtingar þeirra (2. mynd). Ýmsir þættir hafa áhrif á verðmæti fiskstofna til nýtingar og má nefna stærð og holdgæði fiska, vöxt, framleiðslu og afrakstur fiskstofna ásamt aðgengi að vötnum til nýtingar. Til viðmið- unar voru rannsökuð tvö vötn utan veitu- leiðar, Mjóavatn og Vestara-Friðmundar- vatn, og hafa þau afrennsli til Vatnsdals. Þau verða ekki fyrir beinum áhrifum af virkjun Blöndu. Þó öll vötnin séu með svip- aða legu, í um 430 til 450 m y.s., eru þau nokkuð misstór en grunn og svipuð að vist- gerð ef frá er talin Þrístikla sem er nokkru dýpra vatn (1. tafla). Til viðbótar almennum virkjunar- og miðl- unaráhrifum á vatnasvæði Blöndu koma einnig til áhrif frájökulaur þar sem jökulvatni úr Blöndu er veitt úr miðlunarlóni í áður tær vötn á veituleiðinni. Svipað gerðist við gerð miðlunarlóns í Þórisvatni þegar Köldukvísl var veitt í það. Þar hafa komið fram afgerandi breytingar á stofnum svifdýra þar sem hlut- fall stærri tegunda svifdýra, jókst með tilkomu svifaurs (Hákon Aðalsteinsson 1976, 1981 a og 1981 b). Breytingar hafa einnig orðið á fiskstofnunum. í Þórisvatni tók fyrir náttúrulega hrygningu urriða og hefur fiskstofni og veiði verið viðhaldið með seiðasleppingum. Dreifing og vöxtur þess urriða sem sleppt hefur verið þar fylgir að verulegu leyti dreifingu jökulaurs um vatnið en mest er af urriða þar sem gruggið er minnst (Þórólfur Antonsson 1990). Á virkjunarsvæði Tungnaár er líklegt að tíðni þess að virkjunarlónin eru tæmd, vegna viðhalds á virkjunum, ráði miklu um afkomu og framleiðslu silungs í vötnunr eftir að fyrstu áhrif miðlunar hafa dvínað (Þórólfur Antonsson og Guðni Guðbergsson 199lc). Nokkrar rannsóknir hafa verið gerðar á lífríki vatna á veituleið Blönduvirkjunar fyrir virkjun. Þær taka til samsetningar gróðurfars og dýralífs í Austara- og Vestara-Friðmund- arvatni, Þrístiklu, Mjóavatni og Gilsvatni (Hákon Aðalsteinsson 1975). Þá var afkorna og fæða bleikju í Þrístiklu og A-Friðmundar- vatni rannsökuð (Hálfdan Ómar Hálfdanar- son 1980). Rannsóknir hafa einnig verið gerðar á bleikjustofnum og stofnstærð hennar í Austara-Friðmundarvatni (Jón Kristjánsson 1973,1976,1980og 1983). Niðurstöður þeirra rannsókna sem hér eru teknar saman, hafa verið settar fram í árleg- um framvinduskýrslum (Þórólfur Antons- son og Guðni Guðbergsson 1989a, I989b, 1991 a, 1991 b, 1993, Guðni Guðbergsson og 109

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.