Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 77

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 77
að við húshitun með jarðhita- vatni í stað rafmagns eða olíu má sýna fram á að aukning á notkun jarðhitans til hús- hitunar síðasta aldarfjórðung sparar þjóðinni nú um 6 milljarða króna árlega, að ekki sé talað um þær hættur og þá loftmengun sem olíunotkun hefði í för með sér. En hver er þáttur rannsókna í þessari framför? Lfklega er ógerlegt að svara því. Hitt er þó ljóst að það voru vísindalegar og tæknilegar framfarir öðru fremur sem gerðu hina 6. mynd. Sértekjur Orkustofnunar og rannsóknastofnana atvinnuveganna annarra en Hafrannsóknastofnunar í milljónum króna (Mkr) eftir árum miðað við vísitölu fjár- laga 1996. stórauknu og ábatasömu nýtingu jarðhita til húshitunar mögulega. ■ HVAÐ ER TIL RÁÐA? Viðhald raunvísindalegrar og tæknilegrar þekkingar og rannsóknir, sem hafa það að markmiði að bæta við þessa þekkingu, eru vissulega ekki einu þættirnir sem skipta máli til að bæta kjör þjóða í efnahagslegu tilliti. Hins vegar er það reynsla þjóða, sem engin ástæða er til að rengja, að rannsóknir eru ómissandi hlekkur í efnahagskeðjunni, a.m.k. þegar til lengri tíma er litið. Þær eru einnig ómissandi fyrir skynsamlega nýtingu náttúruauðlinda og varðveislu þeirra. Þetta viðhorf til rannsókna er ríkjandi meðal ráðamanna nágrannaþjóða okkar, þjóða sem við eigum viðskipti við. Þar sem þessi við- horf hafa áhrif á efnahag þessara við- skiptaþjóða hafa þau einnig áhrif á efnahag okkar íslendinga. Lítil fjárframlög til rannsókna hér á landi benda sterklega til þess að sú starfsemi sé afskipt. Tvennskonar breytingar þurfa að eiga sér stað eigi að lyfta raunvísindalegum og tæknilegum rannsóknum hér á landi þannig að þær skili íslendingum sambæri- legum árangri við það sem gerist meðal nágrannaþjóðanna. Annars vegar verður að breyta samsetningu þess mannafla sem um þessi mál fjallar á æðsta stjórnstigi, þar sem ákvarðanir eru teknar. Hins vegar verður að auka fjárframlög til rannsókna, bæði hvað varðar laun og rekstur, hvaðan svo sem peningarnir koma. Ég held að síðara atriðið sé ekki vandleyst. Það mun koma af sjálfu sér ef öflugur mannafli fæst í stjórnsýsluna. Það er ráðning slíks mannafla og viður- kenning á störfum hans frá þeim aðilum sem standa á bak við þá þekkingu sem nú ræður ríkjum í stjórnsýslunni, sem er vandamálið. Vandinn er að velja mannafla í stjórnsýsluna sem hefur til að bera allt í senn, reynslu af rannsóknunt, hæfni til stjórnsýslustarfa og stað- alþingis á verðlagi 1996 eftir festu uj ag halda sig við gildi rannsókna í umhverfi þar sem aðrir einstaklingar hafa aðra 7. mynd. Fjárveitingar til árum í milljónum króna (Mkr) miðað við vísitölu fjárlaga 1996. 139

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.