Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 80

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 80
1. mynd. Séð yfir Flatahraun. Upptök þess virðast vera á sléttunni framan við bílinn vinstra megin á myndinni. Ofar til hægri sést á Lambavatn. Ljósm. Jón Jónsson. að Lambavatni, vestur að Stóra-Svarti, en til suðurs meginkvíslin um skarð milli tveggja stórra gíga frá fyrra gosi í Eldborgaröðum. Þar hefur grein úr því fallið inn í annan þeirra, háan, brattan hraungíg næst austan við Stóra-Svart. Inn í gíginn hefur hraunið fallið í bröttum lokuðum rásum og þekur botn hans að mestu. Aðalkvíslin hefur hins vegar fallið suður og að nokkru vestur með gígnum að sunnan og út á austurhlíð Stóra-Svarts og niður eftir henni. Sunnan undir gígnum hefur þetta hraun runnið yfir og að hluta til hrifið með sér stórar hraunkúlur úr þeim gíg, en á það hefur áður verið bent (áðurnefnt rit) að gosið mikla í Rauðöldum endaði með geysilegri hraun- kúlnahríð, en engin dæmi eru um slfkt frá Skaftáreldum 1783. Þar er ljóst að Skaftáreldar voru sem næst hreint hraungos, enda stað- reynd að öskulag frá þeim er lítt áberandi í sjálfum eldsveitunum. ■ RUDDl Þetta nafn hef ég gefið gjallgíg (3. mynd) sem væntanlega er jafnaldri Flatahrauns og hlaðist hefur upp sunnan í Úlfarsdals- skerjum norður af háa, reglulega gígnum í vesturgjánni við austurjaðar sandslétt- unnar miklu, sem liggur um gígaröðina þvera vestanverða. Svo lítt áberandi er þessi gígur að þrátt fyrir að hafa margsinnis farið víða um svæðið sá ég hann fyrst á stækkaðri loftmynd. Gígur þessi er úr gjalli eingöngu, að fráteknum einstaka fallega löguðum smáum hraunkúlum. Hann myndar reglu- Iegan, í sprungustefnuna, lítið eitt spor- öskjulaga gígrima hlaðinn úr grófu blá- svörtu gjalli, sem oft er í misþykkum plötum, með furðulegum kynjamyndum og afar sér- stæðum ljósbrigðum. Auðsýnilega er hann yngri en þykku vikurlögin í kring enda fer ekki milli mála að þau eru frá fyrra gosi, Rauðöldugosinu. Þau eru löngu hætt að fjúka nema lítilsháttar þar sem sár hafa í þau komist, og svo rofist út frá. Það af vikri sem fýkur er frá Skaftáreldum. Gígurinn er 15 m í þvermál að innan og 7 m hár yfir umhverfið norðan megin, en að sunnan er hann á brekkubrún og hangir nokkuð niður eftir brekkunni. 142

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.