Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 36
1. mynd. Rennslisleiðir vatns í berggrunni frá ákomusvæðum að jarðhitasvæðum,
samkvæmt túlkun Braga Árnasonar (1977) á tvívetnisinnihaldi þe.ss.
niðurstöðum sem athuganir á kenniefnum
hafa veitl um uppruna vatns á lághita-
svæðum Islands og þann skilning sem þær,
ásamt öðrum rannsóknum, hafa skapað á
eðli lághitans. Að síðustu verður fjallað
nokkuð um hagnýtt gildi niðurstaðnanna.
TVÍVETNI OG SÚREFNI-18
Á íslandi hefur styrkur tvívetnis í vatni
verið notaður í fulla þrjá áratugi til að kort-
leggja grunnvatnsstreymi og skýra uppruna
jarðhitavatns. Mælingar á úrkomu af nokkr-
um stöðum á landinu á sjöunda áratugnum
sýndu að tvívetnisinnihald var mjög
breytilegt. I uppsprettum og staðbundnu
grunnvatni var breytileikinn hins vegar lítill
eða enginn. Bragi Árnason (1976) taldi að
þetta stafaði af því að grunnvatnið væri
nokkurs konar meðaltal fyrir úrkomuna og
þar með að tvívetnisinnihald grunnvatnsins
samsvaraði meðaltvívetnisinnihaldi úrkomu
á hverjum stað. Hann notfærði sér þessar
niðurstöður og með umfangsmikilli sýna-
töku á sjöunda og áltunda áratugnum úr
staðbundnum lækjum og uppsprettum mat
Bragi meðaltvívetnisstyrk í úrkomu á íslandi
(sjá 4. mynd í fyrri grein okkar (Stefán
Arnórsson og Árný E. Sveinbjörnsdóttir
1998)). Einnig mældi Bragi tvívetnisinnihald
jarðhitavatns af flestum lághitasvæðum
landsins. Allt frá því að tvívetniskort Braga
Árnasonar lá fyrir hefur það verið notað af
íslensku jarðvísindafólki til að fá upplýs-
ingar um ákomusvæði grunnvatns f lindum
og meginrennslisstefnur þess neðanjarðar.
í llestum íslensku jarðhitakerfunum er sam-
sætustyrkur jarðhitavatnsins lægri (hærri
mínustala) en í staðarúrkomu. Munurinn er
mismikill, oftast á bilinu \0-30%c í 8D en
getur orðið allt að 70%o. Hlutföll súrefnis og
vetnissamsætna í jarðhitavatninu eru engu
að síður á þann veg að það er greinilega
úrkoma að uppruna. Bragi Árnason (1976)
skýrði mismun í vetnissamsætum jarðhita-
vatns og staðarúrkomu á þann veg að jarð-
hitavatnið væri að uppruna úrkoma sem
fallið hefði innar á landið og í meiri hæð (1.
mynd).
114