Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 51
_ Steindór
Steindórsson
GRASAFRÆÐINGUR
1902-1997
Steindór Jónas Steindórs-
son grasafrœðingur fœddist
12. ágúst 1902 að Möðru-
völlum í Hörgárdal. Hann
var sonur Kristínar Jóns-
dóttur ráðskonu við heima-
vist Möðruvallaskóla, og
Steindórs Jónassonar versl-
unarmarms frá Þrastarhóli.
Foreldrar Steindórs voru
aldrei í sambúð og lést
faðir hans sama ár og
Steindór fœddist. Hann átti
ættir að rekja til Skagafjarðar langt aftur,
en móðurœtt Steindórs var mestmegnis úr
Hörgárdal og Eyjafirði. Sama sumar og
Steindór fæddist brann Möðruvallaskóli
og var hann síðar endurbyggður á
Akureyri. í framhaldi af því flutti móðir
hans frá Möðruvöllum að Hlöðum í
Hörgárdal með son sinn tœpra þriggja ára,
þarsem hann síðan ólst upp á sveitaheimili
við almenn sveitastörf.
Námsferill
Steindór lauk prófi frá Gagnfrœðaskóla
Akureyrar 1922. Stúdentsprófi lauk hann
frá Menntaskólanum í Reykjavík, en það
nám stundaði hann að miklu leyti
utanskóla, árið 1925. Sama ár sigldi hann
til Kaupmannahafnar til háskólanáms.
Lagði hann stund á nám í grasafrœði,
dýrafræði og jarðfrœði á árunum 1925-
1930. Hann varð þó að leggja námið á
hilluna allt árið 1929 vegna berkla, og var
þá á sjúkrahúsi í Danmörku og síðar á
Kristnesi. I ársbyrjun
1930 hvarf hanti aftur til
náms og lauk þá prófi í
aukagreinunum, dýrafrœði
og jarðfrœði. Um haustið
1930 var Steindór settur
ketmari við Menntaskólann
á Akureyri, sem þá var
nýstofnaður. Fjárskortur í
kjölfar veikindanna mun
hafa valdið því að ekki var
fýsilegt fyrir hann að Ijúka
námi að svo stöddu, enda
var lagt fast að honum að fara í
kennarastatfið. Það fór svo að lokum að
hann átti ekki afturkvæmt til að Ijúka
námi, en var kennari við Menntaskólann á
Akureyri í 42 ár, þar af sex síðustu árin
skólameistari.
Æviferill oc endalok
Strax sumarið 1930 hóf Steindór grasa-
frœðirannsóknir sínar í Flóanum í því
skyni að mæla þær breytingar sem urðu á
gróðri þar við áveituframkvœmdir, sem þá
voru nýhafnar. Þar með hófst um 40 ára
rannsóknaferill Steindórs í grasafrœði sem
náði um mest allt landið, bœði hálendi og
láglendi. Stundaði hann vettvangsvinnu t
grasafræðirannsóknutn á sumrin en úr-
vinnslu og margvísleg ritstörf á veturna í
hjáverkum frá kennslu. Vikið verður nánar
að rannsóknastörfum Steindórs síðar.
Ekki lét Steindór þessi tvö ævistörf
nægja, heldur tók hann þátt í margs konar
félagsstörfum og sat víða í stjórnum. Hann
Náttúrufræðingurinn 68 (2), bls. 129-132, 1998.
129