Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 39
Grímsnesi (hringir) á Suðurlandsundirlendi (A) og Húsavík (B). Þessi vensl má skýra með
því að vatnið sé blanda af staðbundinni úrkomu annars vegar og tiltölulega söltu og
tvívetnissnauðu ísaldarvatni hins vegar.
áður gert sér grein fyrir og fyrri túlkun stenst
ekki í öllum tilfellum (Árný E. Sveinbjörns-
dóttir o.fl. 1995). Einnig er ljóst að þegar allar
tiltækar jarðfræði- og jarðefnafræðilegar
mælingar sem nú liggja fyrir eru túlkaðar
saman, falla þær í fæstum tilvikum að líkani
Trausta. Hin hefðbundna túlkun tvívetnis-
mælinganna hefur ekki alltaf reynst sam-
rýmanleg skilningi á öðrum jarðfræðilegum
gögnum sem nú liggja fyrir um mörg jarð-
hitakerfi, svo sem um lekt jarðlaga, hitastig
og efnasamsetningu jarðhitavatns.
KLÓR OG BÓR
í vatni af lághitasvæðum á íslandi má nota
hlutfall klórs við bór til að meta hvar þessi
efni eru upprunnin. Um tvennskonar
uppruna er að ræða. Annars vegar geta
þessi efni verið komin úr berginu, sem
vatnið hefur streymt um, við útskolun.
Hins vegar geta þau verið ættuð úr sjó.
Sjávarættað klór getur borist í jarðhitavatn
með tvennum hætti, annars vegar með
sjávarúða í úrkomunni og hins vegar með
ístreymi sjávar í berggrunn (3. mynd).
Á sumum láglendum lághitasvæðum
landsins, svo sem á neðanverðu Suður-
landsundirlendi, í Húnavatnssýslum og í
Fljótum í Skagafirði, er sjávarættað klór í
jarðhitavatninu allt að 50-falt hærra en í
úrkomu á þessum stöðum. Klórið í þessu
vatni hlýtur að mestu að vera ættað úr sjó
sem hefur sigið inn í berggrunninn.
Við núverandi aðstæður er ekki við því að
búast að sjór geti streymt inn í þau jarðhita-
svæði sem innihalda jarðsjó, jafnvel þótt í
litlum mæli sé. Sem dæmi má nefna að á
Skeiðum á Suðurlandsundirlendi er vatns-
borð í borholum mun hærra en sjávarborð.
Aðstæður hafa þó ekki alltaf verið með
þessum hætti. I lok ísaldar voru þau lág-
hitasvæði undir sjó sem nú geyma vatn með
sjávarættað klór umfram það sem er í úr-
komunni. Á sumum þessan-a svæða, t.d. í
Flóa, var sjávardýpi þá allt að 50 m. Þess
vegna er talið að sjór hafi borist í fyrrnefnd
lághitasvæði á þessum tíma og sé því um
10.000 ára gamall. Athyglisverðast er þó
e.t.v. að eftir því sem meira er af jarðsjó í
jarðhitavatni á einstökum lághitasvæðum er
tvívetnisinnihald vatnsins lægra (4. mynd).
Þetta er talið benda til þess að jarðhitavatnið
117