Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1998, Qupperneq 40

Náttúrufræðingurinn - 1998, Qupperneq 40
 innihaldi bæði jarðsjó og ferskvatn frá ís- aldarlokum. Ferskvatn þess tíma er mun snauðara af tvívetni en úrkoma á sömu svæðum er nú, vegna þess að í lok ísaldar var mun kaldara og úrkoma á hverjum stað því tvívetnissnauðari. ÝMIS JARÐFRÆÐILEG GÖGN Sprungur Athuganir á mörgum lághitasvæðum á síðustu 10 til 15 árum hafa leitt í ljós að jarðhitinn tengist ungum sprungum sem örugglega hafa verið virkar eftir ísöld, því þær skera laus jarðlög sem myndast hafa á nútíma (síðastliðin 10 þúsund ár). Slíkar sprungur er t.d. að fínna í tertíerum berggrunni í Glerárdal ofan Akureyrar (Ólafur Flóvenz o.fl. 1984) og í kvarterum berggrunni á Laugarvatni (Lúðvík Georgssono.fi. 1988). Lekt Lekt í bergrunni er víða nokkuð vel þekkt, sérstaklega á jarðhitasvæðum en einnig á virkjunarsvæðunum við Þjórsá og Tungnaá. Lekt bergs er mælikvarði á vatnsrennsli um það. Langtímaprófanir á lághitasvæðum sýna að lekt innan svæðanna er yfirleitt miklu meiri en í berggrunninum umhverfis. Sam- kvæmt niðurstöðum Axels Björnssonar o.fl. (1990) er Iekt í tertíerum jarðlögum á bilinu 1-4*10-14 m2, en þar sem jarðlög eru sprung- in á jarðhitasvæðunum sjálfum getur lektin verið nokkrum stærðargráðum meiri (Krist- ján Sæmundsson og Ingvar B. Friðleifsson 1980). Niðurstöður rannsókna á þeim lághita- svæðum sem könnuð hafa verið með djúp- borunum og þar sem hiti er yfir 60°C sýna að lekt er nógu mikil til að eðlisþyngdarmunur á heitu og köldu vatni viðhaldi hræringu í sprungum (niðurstreymi á köldu vatni á einum stað í sprungunni og uppstreymi á heitu vatni á öðrum stað). Ekki er nauðsyn- legt að hæðarmunur sé á vatnsborði til að rennsli grunnvatns gegnum lághitakerfin eigi sér stað. Samkvæmt þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir er lekt jarðlaga í tertíerum og kvarterum berggrunni utan ungra sprungna mun minni en Bragi Arnason (1976) gerði ráð fyrir þegar hann var að meta aldur vatns sem streymdi djúpt um berggrunninn. Axel Björnsson o.fl. (1990) meta það svo að grunnvatn sem streymir djúpt í ósprungnum berggrunni sé tugi þúsunda ára á leiðinni frá hálendi til strandar, þar sem vegalengdin er mest. í Ijósi þessa er við því að búast að í berggrunni á láglendi sé að finna, a.m.k. sums staðar, vatn frá ísöld. Þótt slíkt vatn væri staðbundin úrkoma að uppruna væri það mun snauðara af tvívetni en staðbundin úrkoma er í dag. Ummyndun jarðlaga minnkar lekt þeirra. Ummyndun og útfellingar í sprungum og glufum í berginu aukast með dýpi (Walker 1960) og á um 3 km dýpi er talið að allar holur, sprungur og glufur í bergi séu fylltar af ummyndunarsteindum (Ólafur Flóvenz o.fl. 1985). Víða auka ungar sprungur lekt jarðlaga og valda því að lektin verður misleit, þ.e. hún er mismikil í mismunandi stefnur. Lághitasvæðin einkennast einmitt af slíkri lekt. Jarðhitavatn sem kemur upp um unga sprungu sem liggur í þéttara bergi hlýtur því að vera blanda vatns sem seytlað hefur um berg mismunandi lengi, háð lekt bergsins og rennslisleiðum vatnsins. Jarð- hitavatnið er þannig blanda af misgömlu vatni af ýmsum uppruna. Þetta verður að hafa f huga við túlkun á tvívetni og öðrum kenniefnuin í jarðhitavatni. Hitastig Hitastig lághitakerfanna, eins og það er mælt í borholum, breytist oft lítið yfír langt dýptarbil. Þannig er því t.d. háttað í Laugameskerfinu í Reykjavík, þar sem hiti mælist u.þ.b. 120°C á 400 m dýpi en í botni dýpstu holunnar á svæðinu, á 3085 m dýpi, er hitinn nálægt 160°C (5. mynd). Þessi jafni hiti er talinn orsakast af uppstreymi heits vatns í jarðhitakerfinu, sem jafnar út hilann í berginu. Grunnar holur sem boraðar hal'a verið í þétt berg á höfuðborgarsvæðinu og í næsta nágrenni þess sýna að hiti vex línulega með dýpt, um 100°C fyrir hvern kílómetra í 118
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.