Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 48

Náttúrufræðingurinn - 1998, Page 48
Fréttir SPILLIR UPPRISA HOLDSINS SJÓNINNI? Lyfjaframleiðandinn Pfizer hefur sett á markað lyf, Viagra, til að lyfta linum limum karlmanna. Ljóst er að lyfið hefur þau áhrif sem því eru ætluð. Samkvæmt nýlegri skýrslu í The New England J'ournal ofMedicine (388, bls. 1397) leiddi rannsókn á 532 körlum, sem sumir tóku Viagra en aðrir þóknunarlyf, í ljós að þeirn sem fengu 100 mg af lyfinu stóð tvöfalt oftar en áður. Þessum körlum tókust samfarir í 69% tilvika samanborið við 22% í viðmiðunarhópnum. James Barada, vísindamaður við Kynheilsustofnun karla (Center for Male Sexual Health) í Albany, New York, dregur þessar tölur í efa þótt hann vefengi ekki áhrif lyfsins. Hann segir að margir þeirra karla sem tóku þátt í rannsókninni séu ekki getulausir en harmi aðeins missi æskuþróttar síns, og einungis þriðjungur þeirra sem raunverulega hafi misst kyngetu sína öðlist nægilega reisn til samfara eftir neyslu lyfsins. Öllu verra er að lyfinu fylgja ýmsar aukaverkanir. Einna verst er sú að litarskyn sumra neytenda þess spillist þannig að bláskyn þeirra eflist. Hvort tveggja, aukin kyngeta og trufluð litasjón, gæti tengst ensími, fosfódíesterasa. Verkun Viagra byggist á að lyfið hel'tir verkun þessa ensíms í limnum en sams konar ensím í keilum augnbotnsins er forsenda eðilegrar litasjónar. Augnlæknar benda á að sjónhimnur í fólki með arfgenga veilu í gerð fosfódíesterasa skemmist oft þegar á ævina líður án þess rönd verði við reist. Sykursýki, sem er algeng orsök getuleysis, veldureinnig oft sjónhimnuskemmdum. Pfizer kveðst hafa kannað áhrif lyfsins á sjón neytenda en félag bandarískra augnlækna, The American Academy of Opthalmologists, krefst frekari rannsókna.. New Scientist 16.5.1998. Örnólfur Thorlacius endursagði. Breska ríkisstjórnin lætur nú kanna aðferðir til að virkja sjávarbylgjur en tillögum um það hefur verið stungið undir stól frá því að stjórnvöld höfnuðu þeim árið 1982 sem óarðbærum. Vísindamennirnir sem aðferðirnar boðuðu héldu því þá fram að ráðherrar legðust gegn hugmyndum þeirra til að vernda kjarnorkuaflstöðvar. Þessar hugmyndir voru sex og komu frá fjórum löndum, Skotlandi, írlandi, Svíþjóð og Kóreu. Vegna áhugaleysis Breta sóttu uppfinningamennirnir um styrk frá Evrópusambandinu og fengu hann. Nú hefur ráðamaður bresku stjórnarinnar bent á það að þrjár af þessum sex hugmyndum séu komnar á það stig að þær skili orku fyrir minna en sex pens á kílóvattstund, en á því verði telst raforka samkeppnisfær á breskum markaði. Einkum beinist athyglin að The Nodding Duck, „öndinni á öldunum“, sem Stephen Salter við Edinborgarháskóla hannaði og getur skilað raforku fyrir 2,6 pens á kílóvattstund, með því að hossast á sjónum. New Scientist 16. 5.1998. Örnólfur Thorlacius endursagði. 126

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.