Náttúrufræðingurinn - 1998, Side 50
1. mynd. Krosshóll. Jökulalda í Alftaveri. Til hœgri sandorpið hraun af Kötlusvœðinu.
Milli þess og öldunnar rennur Vestari-Kœlir. Ljósm. Jón Jónsson.
oftast reistum upp á rönd. Svo virðist sem
hóll þessi kunni að hafa verið algróinn í eina
tíð, því leifar af þykkri jarðvegsþekju ná
langt upp eftir honum að sunnanverðu en
annars er hann nakinn. Ekki er ég í vafa um
að þetta er jökulgarðsstubbi sem líklega
hefur hlaðist upp í krika milli tveggja ís-
strauma beggja vegna höfðans, úr jaðar-
urðum beggja. Hann kemur vel heim við að
vera hluti af jökulgarðinum sem hér hefur
verið fjallað um. Hæðir þær sem áður voru
vestur af höfðanum og Katla kaffærði
endanlega 1918 hafa að líkindum verið hluti
af sama garði, sem og Múlinn austur af
Kapalgörðum, sem Katla gróf löngu áður, en
lifir enn í nafninu Múlakvísl.
Aldur jökulgarðanna
I áðurnefndri grein minni er ekki tekin afstaða
til aldurs þessara jökulgarða, en í umræðu
virðist hafa verið gengið út frá að þeir væru frá
síðasta jökulskeiði. Reynslan er sú að í flestar
jökulmyndanir frá þeim tíma, að undanskildum
botnurðum, er sæmilega auðvelt að grafa með
handverkfærum. Ég notaði því einfaldasta
vísindahjálpartækið, skófluna, og reyndi að
grafa í þessar myndanir. Brátt kom í ljós að
efsta veðraða lagið, 1-2 skóflustungur, var
auðgræft en þegar komið var 25-30 sm niður
var efnið orðið svo þétt að ekki varð á unnið
á þennan hátt. Væri því þétta yfirborði greitt
þungt högg, tók undir (söng í) líkt og um
fast berg væri að ræða. Af framangreindu
verður hér sú ályktun dregin að jökulgarðar
þessir séu ekki yngri en frá næstsíðasta
jökulskeiði.
Síðari ára rannsóknir þykja benda til þess
að síðasta jökulskeið hafi verið mun
umfangsminna en lengi hefur verið talið. Má
í því sambandi nefna athuganir á Reykja-
nesskaga og undir Eyjafjöllum.
Heimildir
Jón Jónsson 1977. Jökulgarðar í Vestur-Skafta-
fellssýslu. Týli 7. 37^10. Akureyri.
Jón Jónsson 1985. Eyjafjallapistlar III. Útivist
11. 53.
Jón Jónsson 1989. Hveragerði og nágrenni. Jarð-
fræðilegt yfirlit. Rannsóknarstofnunin Neðri-
As, Hveragerði. Bls. 30.
Jón Jónsson 1994. Um Kerlingarfjörð í Vestur-
Skaftafellssýslu og fleira. Náttúrufræðingur-
inn 64. 37-40.
128