Náttúrufræðingurinn - 1998, Side 66
og ferðamennsku er mikil þörf fyrir minni
leshefti um einstaka staði og smærri
náttúruperlur, þar sem náttúrfarið, sagnir og
saga eru tengd saman í eina heild, og sem
ferðamenn geta tekið með sér. Bókin um
Þórsmörk væri gullnáma af efni í slíka
bæklinga.
Bókin um Þórsmörk er byggð upp sem
afmælis- eða hátíðarrit með Tcibula gratula-
toria og tilefnið er 75 ára afmæli Þórðar í
Skógum aðalhöfundar hennar. Mér finnst
vanta nokkuð á að afmælisbarnsins sé
minnst á viðeigandi hátt. Þess er aðeins
getið lauslega innan á bókarkápunni, en þær
vilja oft glatast. Inni í bókinni er einungis
ritskrá Þórðar sem gefur aðeins óljósa
vísbendingu um tilefni bókarinnar. Að öðru
leyti er öll frágangsvinna við bókina að-
standendum hennar til sóma. Einnig er öll
meðferð íslensks máls prýði á bókinni. Stíll
Þórðar er bæði léttur og lipur, sem gerir efni
hennar ljóslifandi og aðgengilegt leikum
sem lærðum. Myndefnið úr Þórsmörk er víða
frábært og eykur mjög gildi bókarinnar. Hún
tilheyrir þeim flokki bóka sem er aufúsu-
gestur í hverju bókasafni.
Guttormur Sigbjarnarson
Fréttir
STAFRÆN FILMA
í GÖMLU MYNDAVÉLINA
Hægt er að taka stafrænar ljósmyndir á segulband með sömu tækni og beitt er við mynd-
bandstöku og í sjónvarpi. Við þetta hafa menn notað sérstakar myndbandsljósmyndavélar
eða skannað venjulegar ljósmyndir.
Nú er bandarískt fyrirtæki, Irvine Sensors í Costa Mesa, Kaliforníu, að setja á markað tæki,
Imagek, sem breytir venjulegri 35 mm myndavél í stafræna myndbandsvél. Rafhlöður,
rafeindabúnaður og minni serri geymir myndimar eru í hylki sem kemur í stað venjulegs 35 mm
filmuhylkis í myndavélinni. Út úr hylkinu gengur þynna sem liggur í filmufleti mynda-
vélarinnar þar sem filman er annars.
í flestum myndbandstökuvélum og stafrænum myndavélum nemur hleðslutengt kerfi (CCD,
„charge-coupled device") myndina. Imagek-kerfið notar í þess stað eitthvað sem nefnt er
CMOS og stendur fyrir „complementary metal oxide semiconductors". Hvað sem það nú
þýðir hefur þessi tækni til þessa verið of dýr til notkunar í myndavélum en myndirnar verða
skarpari en úr hefðbundnum rafeindabúnaði og minni orka er notuð. I Imagek-kerfinu eru
myndimar geymdar í 40 megabæta minni. Það rúmar 30 skarpar myndir, sem hver er gerð af 1,3
milljón myndeiningum (,,pixels“).
Þegar minnið er fullt eru gögnin í því færð inn í tölvu til geymslu. Þangað má svo sækja
myndirnar, skoða þær og kópíera á ljósmyndapappír eða á annan miðil, t.d. litgreina þær til
prentunar.
Von var á Imagek-ljósmyndakerfinu á markað sumarið 1998. Aætlað verð í Bandaríkjunum er
um 1000 dalir.
144
New Scientist 7.3.1998.
ÖrnólfurThorlacius tók saman.