Náttúrufræðingurinn - 1995, Side 16
miðlífsöld jarðar eftir því sem best er vitað
og henni lauk með krítartímabilinu fyrir
65 milljón árum. Annars er aldur þessarar
nýfundnu ættkvíslar óviss ennþá, en menn
hafa getið sér þess til að hann megi rekja
50-100 milljón ár aftur í tímann. Þetta
bráðabirgðaálit byggist einkum á því að
útdauða ættkvíslin Araucarioides, sem
nýfundnu trén líkjast einna mest, hefur
fundist steingerð frá þeim tíma og ætt-
kvíslin Agathis virðist einnig hafa komið
fram um svipað leyti.
Báðar ættkvíslirnar, Araucaria og
Agathis, vaxa nú einkum villtar á suður-
hveli jarðar, en ættin Araucariaceae var
miklu útbreiddari áður og hafa steingerv-
ingar hennar fundist í Evrópu og allt
norður á Grænland. Af Araucaria eru
þekktar 19 núlifandi tegundir; ættkvíslin
nær rétt norður fyrir miðbaug á Nýju-
Gíneu en vex annars á eyjum suðaustur af
henni og einna mest á Nýju-Kaledóníu, í
austurhluta Astralíu og nyrst á Nýja-
Sjálandi, og Ioks í Suður-Ameríku.
Agathis vex á svipuðum slóðum en nær
norður til Filippseyja og vestur til Jövu,
nær lengra suður eftir norðureyju Nýja-
Sjálands, vex á svipuðum slóðum í
Ástralíu, en vantar í Suður-Ameríku. Af
einni tegund Agathis fæst harður og góður
viður til smíða en úr annarri eftirsóttur
harpeis sem er töluvert nýttur.
Eins og að líkum lætur er enn margt
órannsakað sem tengist þessari nýfundnu
ættkvísl og uppruna hennar og skyldleika
við aðrar ættkvíslir. Henni hefur heldur
ekki verið gefið vísindalegt nafn á latínu
ennþá en gert er ráð fyrir því að það fái
hún innan fárra mánaða. En heimamenn
kenna hana við fundarstaðinn og kalla
Wollemi-furu, þó hún sé einungis fjar-
skyld eiginlegum furum, þ.e. furuættkvísl-
inni, en á suðurhvelinu kallar almenningur
flestöll barrtré sem þar vaxa villt furur.
Að lokum vil ég þakka Dr. Ken Hill,
grasafræðingi við Þjóðargrasasafnið í
Grasagarði Sydney í Nýja-Suður-Wales,
kærlega fyrir upplýsingarnar um þessa ný-
fundnu ættkvísl, sem hann veitti mér
fúslega ásamt leyfi til að birta þær hér.
PÓSTFANG HÖFUNDAR
Eyþór Einarsson
Náttúrufræðistofnun Islands
Hlemmi 3
105 REYKJAVÍK
Netfang eythor@nattfs.is
14