Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 76
suðurapa sem fundust við uppgröft
nálægt Hadar í Afar-eyðimörkinni í
Eþíópíu árið 1974. Gripurinn ber
einkennisstafina A.L. 288-1 en er
betur þekktur sem apamœrin Lucy.
Hún er af tegund suðurapa sem
hlotið hefur vísindaheitið Australo-
pithecus afarensis eða suðurapinn
frá Afar. Um 40% af beinagrindinni
hafa varðveist.
ekki var um að villast að þetta var sérstök tegund
og að einmitt þarna væri að finna vöggu mann-
kyns. Elstu og heillegustu leifar suðurapa reynd-
ist hins vegar vera að finna á Afar-svæðinu í
Eþíópíu. Þar eru þykk setlög með margskonar
dýraleifum, þ.á m. leifum suðurapa, og þar fannst
Lucy árið 1974.
■ SUÐURAPARNIR í AFAR
Lucy og fyrsta fjölskyldan
Það sem gerir Lucy sérstaka er að hún er fyrsti og
eini suðurapinn þar sem verulegur hluti af bein-
um sama einstaklings hefur varðveist - venjulega
verða menn að láta sér nægja staka leggi, tennur
og aðra beinbúta. Nafnið er þannig til komið að
kvöldið eftir beinafundinn var bítlalagið Lucy in
the sky with diamonds leikið margsinnis af segul-
bandi í búðum fornleifafræðinganna, sem voru
himinlifandi (sky-high) yfir fundinum. Nafnið
Lucy festist síðan við þennan einstakling sem
reyndist vera kvenkyns. Bandaríkjamaðurinn
Donald C. Johanson, einn af stjórnendum fjöl-
þjóðlegs rannsóknaleiðangurs sem vann að upp-
greftrinum við Hadar, skrifaði síðar metsölubók
undir titlinum Lucy. Nokkru eldri en Lucy voru
svo beinbitar nokkurra einstaklinga sem fundust
saman og fengu nafnið The first family (en þann-
ig er forsetafjölskylda Bandaríkjanna oft titluð).
SöNUR LUCYAR
Eftir að Lucy fannst var Hadar-svæðinu og ná-
grenni lokað fyrir erlendum rannsóknarmönnum
um nokkur ár, m.a. vegna nálægðar við stríðs-
átakasvæði og einnig var orðrómur á kreiki unr
að leyniþjónustur stórveldanna væru of mikið
með puttana í rannsóknunum. Sennilegast er þó
að Eþíópíumenn hafi sjálfir viljað taka meiri þátt
í og fylgjast betur með rannsóknunum. Nú er
nýlega byrjað að grafa þarna aftur og þegar búið
að finna fleiri bein, þar á meðal heillega haus-
kúpu, yngri en Lucy, og hefur hún þegar verið
uppnefnd „sonur Lucyar“.
Eldri suðurapar finnast
Lucy og nánustu ættingjar hennar ætla ekki lengi
að njóta þess að vera elst suðurapa því nýlega
bárust fréttir af nýjum beinafundunr frá Afar-
svæðinu - nú um fimmtíu kílómetra fyrir sunnan
74