Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 61
aðrar tegundir og fleira í þeim
dúr.
Egg sem hafa varðveist eru
eilítið færri, eða um 75 talsins,
og talsvert af stökum geirfugls-
beinum, jafnvel heillegum
beinagrindum, hefur fundist í
jörðu. Margir hamanna eru
upprunnir á íslandi og líklega
flest eggin, þótt uppruni þeirra
sé yfirleitt óljósari en ham-
anna.
4. mynd. Geirfuglshamurinn uppsettur í sýningarsal
Náttúrufræðistofnunar íslands. Fuglinn er liðlega 170
ára gamall en er ennþá vel farinn. - The only mounted
Great Auk skin which is preserved in Iceland. The
specimen is over 170 years old but still in fine condi-
tion. Mynd/photo Hjálmar R. Bárðarson (úr bókinni
Fuglar íslands).
Þ/ÓÐIN KAUPIR GEIRFUGL
Eini geirfuglshamurinn sem til
er hér á landi er varðveittur á
Náttúrufræðistofnun íslands.
Hann var keyptur á uppboði
árið 1971, svo sem getið var í
ýmsum ritum (t.d. Bennett
1971 og Tinker 1971), fyrir
9300 pund. Það samsvarar nú
rúmlega einni milljón íslenskra
króna en var langtum hærri
upphæð að raungildi fyrir
aldarfjórðungi. Nú samsvarar
þessi fjárhæð um 7 milljónum
króna ef miðað er við bygg-
ingar- eða neysluverðsvísitölu
en um 8,6 milljónum ef miðað
við þróun tímakaups ASI (skv.
útreikningum Jakobs Gunnars-
sonar hagfræðings hjá Seðla-
banka íslands). Fénu var safn-
að í almennum samskotum og stóðu
félagasamtökin Rótarý, Lions og Kiwanis
fyrir söfnuninni. Benedikt Árnason endur-
skoðandi mun upphaflega hafa átt hug-
myndina að söfnuninni en þeir Finnur
Guðmundsson fuglafræðingur, sem starf-
aði hjá Náttúrufræðistofnun Islands í tæp
40 ár, og Valdimar Jóhannesson blaða-
maður voru í forsvari l'yrir henni. Þeir
sóttu uppboðið hjá Sotheby's í London þar
sem Islendingum var sleginn fuglinn (3.
mynd). Eftir heimkomuna var hann sýndur
almenningi á Þjóðminjasafninu við góðar
undirtektir en hefur síðan verið í sýningar-
sal Náttúrufræðistofnunar Islands (4.
mynd).
Þetta mun hafa verið fyrsta almennings-
söfnunin hérlendis til annars en líknar-,
góðgerðar- eða íþróttamála. Viðbrögð al-
mennings þóttu undraverð því aðeins voru
fjórir dagar til stefnu fyrir söfnunina.
Fjölmiðlar sýndu málinu mikinn áhuga og
stökur voru jafnvel settar saman um geir-
fuglinn, eins og þessi eftir ókunnan
höfund:
Danir bjóð' upp dýrgripinn
duga krónur slyngar.
Gefum okkur geirfuglinn
góðir Islendingar.
Ástæðan fyrir þeim mikla áhuga sem
íslendingar sýndu söfnuninni var eflaust
59