Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 55

Náttúrufræðingurinn - 1995, Page 55
Brot úr sögu GEIRFUGLSINS ÆVAR PETERSEN rið 1994 var hálf önnur öld liðin frá því geirfuglinum Pinguinus impennis var útrýmt, en tveir síðustu fuglarnir voru drepnir í Eldey undan Reykjanesi í byrjun júní 1844. Nafn íslands er og verður því miður órjúfanlega tengt þessum atburði á spjöld- um sögunnar. Víða um heim var geir- fuglsins getið í ræðu og riti á þessum tímamótum og vil ég einnig leggja nokkur orð í belg af þessu tilefni. Sorgleg örlög geirfuglsins verða þó ekki rakin hér nema stuttlega. Ætlunin er fyrst og fremst að skoða ákveðin atriði í sögu geirfuglsins hér á landi sem lítið hefur verið fjallað um til þessa. ■ SKRIF UM GEIRFUGL Nokkuð hefur verið skrifað á erlendum málum um geirfugl á íslandi og má þar m.a. nefna rit eftir Steenstrup (1857), Newton (1861), Grieve (1885), Bengtson (1984), Nettleship og Birkhead (1985) og Bourne (1993). Rit þessi hafa verið notuð við samningu þessa greinarkorns. Mun minna hefur verið ritað um geirfuglinn á íslensku. Aðgengilegustu en jafnframt yngstu umfjallanir eru kaflar í grein Arn- Ævar Pctcrsen (f. 1948) lauk B.S. Honours-prófi í dýrafræði frá háskólanum í Aberdeen 1971 og doktorsprófi í fuglafræði frá Oxfordháskóla 1981. Frá 1978 hefur Ævar starfað hjá Náttúrufræðistofnun íslands og er nú forstöðumaður Reykjavíkurseturs stofnunarinnar. þórs Garðarssonar um fuglabjörg Suður- kjálkans í Árbók Ferðafélags íslands 1984 og fuglabók Hjálmars R. Bárðarsonar (1986). Nokkrar blaðagreinar eru lil um efnið frá fyrri tíð, þ. á m. aldarminning um geirfuglinn í Lesbók Morgunblaðsins (Anon. 1944). Einnig er rétt að nefna rit- deilu sem spannst í dagblöðum árið 1929 vegna drápsins á síðustu fuglunum. Þar áttust við Peter Nielsen faktor á Eyrar- bakka og Ólafur Ketilsson, einn afkom- enda þeirra sem fóru til Eldeyjar örlaga- daginn í júnfbyrjun 1844 (Nielsen I929a, 1929b, Ólafur Ketilsson 1929a, 1929b). Ein doktorsritgerð hefur verið samin um geirfuglinn á íslandi (og annars staðar) og er hún eftir Þjóðverjann W. Preyer (1862). Öll ofangreind rit eru til á Náttúrufræði- stofnun Islands ef einhver vill kynna sér þau nánar. ■ ÚTLIT OG LÍFSHÆTTIR Svíinn S.-A. Bengtson (1984) tók saman áhugavert yfirlit með margvíslegum upp- lýsingum um lifnaðarhætti geirfuglsins. Hann varð þó óhjákvæmilega að geta nokkuð í eyðurnar því upplýsingar sem hafa varðveist gefa aðeins brotakennda innsýn í lífshætti tegundarinnar. Bengtson nýtti sér hins vegar þekkingu manna á lifnaðarháttum skyldra núlifandi tegunda til samanburðar. Geirfuglinn var mjög stór fugl af svart- fuglakyni (af ættinni Alcidae) um 70 cm Náttúrufrœðingurinn 65 (1-2), bls. 53-66, 1995. 53
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.