Náttúrufræðingurinn - 1980, Blaðsíða 56
klær og nef, sem gætu gefið fjölda étinna
einstaklinga til kynna fundust ekki í
saur að staðaldri.
NIÐURSTÖÐUR
Fæðuval minks við Sogið í Grímsnesi
einkenndist af miklum breytingum vorið
og haustið 1978, sem rekja má til breyt-
inga á fæðuframboði (4. og 5. mynd).
Um veturinn, fram undir miðjan maí-
mánuð, voru laxfiskar og hornsíli
(Gasterosteus aculeatus L.) langalgengasta
fæðan. Eftir miðjan maí varð snögg
breyting og minkamir fóru að éta egg og
unga þeirra fugla sem urpu á athug-
anasvæðinu. I ágúst jókst fiskneysla að
nýju. Hagamýs (Apodemus sylvaticus (L.))
voru étnar allt athuganatímabilið nema
í júlí, en mest að haustinu. Skordýr voru
étin í mestum mæli i júlí, en heildar-
þýðing hryggleysingja sem fæða fyrir
mink var lítil. Minkar á athuganasvæð-
inu hættu að sækja fæðu niður í vatnið
(fiska) um miðjan maí og fóru þess í stað
að éta fæðu, sem þeir sóttu upp í skóg-
inn (fugla og hunangsflugur). Hér á
eftir verður fjallað nánar um helstu
fæðutegundir og niðurstöður skýrðar
eftir föngum.
Hagamýs
Minkur veiddi hagamýs í skóginum
allan athuganatímann nema í júlí.
Hlutdeild músa í fæðu hélst svipuð fyrri
helming ársins en síðan jókst hún í ágúst
(aðalfæða í 21% saursýnanna), náði há-
marki í september (26%) en féll svo aftur
í október (13%) (4. og 5. mynd). Fullvíst
má telja að fjöldi hagamúsa sé mestur
seinni hluta sumars og að haustinu.
Niðurstöður sýndu að minkur hagnýtti
sér aukið framboð hagamúsa og át þær í
mestu magni þegar músastofninn var
stærstur.
Víðast hvar erlendis er fæðuframboð
nagdýrategunda mun fjölbreyttara en
hér á landi. Þar étur minkur þau nagdýr
sem mest er af hverju sinni og á
ákveðnum tímum árs étur minkur ekki
annað (Hamilton 1959).
Fuglar
Mjög lítið var étið af fuglum fyrri
hluta ársins og komu fuglar ekki fyrir
sem aðalfæða í febrúar og apríl. Eftir
miðjan maí jókst hlutdeild fugla snögg-
lega og náði hámarki í júlí er 75% saur-
sýnanna innihéldu fuglsleifar. I ágúst
féllu fuglar niður í 27% aðalfæðunnar
og í október var hlutdeild fugla 12% (4.
mynd).
4. mynd. Fæðusamsetning minka við Sog
í Arnessýslu á timabilinu janúar—október
1978, byggð á tíðni aðalfæðu í saursýnum
hvers mánaðar. Alls voru athuguð 421 sýni.
— Composition of mink diet, expressed as per cent
frequency of occurrence as main food.
50