Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 60
Kristján Sæmundsson:
Skýrsla um Hið íslenska
náttúrufræðifélag 1980
FÉLAGAR
1 árslok 1980 töldust félagar og kaupendur
Náttúrufræðingsins alls 1821 og skiptust
þannig: Heiðursfélagar 5, kjörfélagar 2,
ævifélagar 51, ársfélagar í Reykjavík og ná-
grenni 1232, ársfélagar utan Reykjavíkur
358, ársfélagar og áskrifendur Náttúru-
fræðingsins erlendis 68, félög fyrirtæki og
stofnanir 105. Þessar eru niðurstöðutölur fé-
lagatals sem gengið var frá um áramótin
1980/1981 og hefur samkvæmt því fækkað í
félaginu um 110.
Meða! félagsmanna sem létust á árinu
skal sérstaklega minnst Ólafs Jónssonar til-
raunastjóra á Akureyri, eins fárra kjörfélaga
Hins íslenska náttúrufræðifélags. Ólafur
gerðist brautryðjandi hér á landi í rannsókn
skriðufalla og snjóflóða og hefur skrifað um
það efni þykkar bækur.
Við minnumst einnig Williams Pálssonar
frá Halldórsstöðum í Laxárdal, ævifélaga
frá 1918.
STJÓRN OG STARFSMENN
FÉLAGSINS
Stjórn náttúrufrœðifélagsins var þannig skip-
uð. Formaður var Kristján Sæmundsson
jarðfræðingur, varaformaður Sólmundur
Einarsson sjávarlíffræðingur, gjaldkeri
Ingólfur Einarsson verslunarmaður, ritari
Erling Ólafsson skordýrafræðingur og Bald-
ur Sveinsson verkfræðingur var meðstjórn-
andi.
I varastjóm voru Bergþór Jóhannsson,
grasafræðingur og Einar B. Pálsson, verk-
fræðingur.
Endurskoðendur voru Tómás Helgason hús-
vörður og Magnús Árnason múrarameistari.
Varaendurskoðandi var Gestur Guðfinnsson
blaðamaður.
Ritstjóri Náttúrufrœðingsins var Kjartan
Thors jarðfræðingur.
Afgreiðslumaður Náttúrufrœðingsins var
Stefán Stefánsson fyrrverandi bóksali.
Sljórn Minningarsjóðs Eggerls Ólafssonar
skipuðu Guðmundur Eggertsson erfðafræð-
ingur, Ingólfur Davíðsson grasafræðingur og
Sólmundur Einarsson sjávarlíffræðingur, en
hann var jafnframt gjaldkeri sjóðsins. Vara-
menn í stjórn Minningarsjóðs Eggerts Ólafssonar
voru Ingimar Óskarsson náttúrufræðingur
og Sigurður Pétursson gerlafræðingur.
Stjórnin vill þakka þessum mönnum
þeirra störf í þágu félagsins á árinu. Sér-
staklega vill hún þakka Kjartani Thors
jarðfræðingi ritstjóra Náttúrufræðingssins
gott starf í þágu félagsins en hann lætur nú
af ritstjórn tímaritsins eftir 5 ára ritstjóra-
feril.
Stjórnin hélt 6 stjórnarfundi á árinu. Til
umfjöllunar á stjórnarfundum voru ýmis
mál. Má þar nefna meðal annars skipan
fræðsluerinda og fræðsluferða, útnefning
fulltrúa félagsins á fulltrúafund Land-
verndar, val nýs ritstjóra Náttúrufræðings-
ins, athugun á nýbreytni varðandi útsend-
ingu til félagsmanna, og fjárhagsmál félags-
ins.
Náttúrufræftingurinn, 51 (1—2), bls. 54 — 59, 1981
54