Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 49

Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 49
hafsbotninn. Niðurstöður þeirra rann- sókna birtast jafnóðum, og fylla nú ein 50 bindi. Ætla má, að borholur á Reykjanesi, þar sem heitur saltsjór kemur upp, séu í flestu líkar borholum sem boraðar væru í Reykjaneshrygginn. Segulkort þau, sem prófessor Þorbjörn Sigurgeirsson hefur gert og mælt fyrir úr flugvél, sýna segulræmur svipaðar þeim, sem mælst hafa yfir hafsbotnin- um. Að vísu ætla menn, að túlkun slíkra mælinga á landi sé á ýmsan hátt flókn- ari en á hafsbotninum, vegna þess, að á landi renna hraunin lengra, en hlaðast ekki upp vegna hraðkælingar eins og á hafsbotninum, auk þess sem isaldarrofiÚ hefur flækt myndina á landi. En al- mennt séð er Island að allri gerð og uppbyggingu hluti af jarðskorpu At- lantshafsins. Jarðfræðirannsóknir undangenginna áratuga sýna, að þau ferli, sem nú eru virk í jörðinni, hafa verið það í a. m. k. 4000 milljón ár, eða allt frá því að hið elsta berg sem fundist hefur, myndaðist. Þetta er í samræmi við hið fornkveðna, að nútíminn sé lykill að fortíðinni. I ljósi flekakenningarinnar þykjast menn nú skilja myndun meginlanda úr efni jarð- möttulsins, myndun fellingafjalla og fornra jarðtroga, sérstæða þróun og dreifingu dýrategunda hinna ýmsu meginlanda, jarðhita og málmmyndan- ir, bergtegundir og hvaðeina. Wegener varð að sætta sig við það, að landrekskenningin fengi mótbyr, þótt hann tryði því sjálfur, að margt áður óskiljanlegt mætti skýra í ljósi hennar. Og tæplega hefur hann ímyndað sér, að í endurbættri mynd ætti hún eftir að valda svo algerri byltingu sem raun varð á. Og mætti hann því vel við una. EFTIRMÁLI Svo vildi til, að þegar ég var við framhaldsnám í Bandaríkjunum milli 1966 og 1970, voru kennarar mínir ýmsir af frumkvöðlum „nýju jarðfræð- innar,“ sem þarna höfðu safnast í kringum Harry Hess, eða auk hans sjálfs þeir Fred Vine, Jason Morgan og Walt- er Elsasser. Þá voru einmitt ýmis af þessum stórmerkjum að gerast: fleka- kenningin birtist 1968 og möttul- stróka-kenningin var í burðarliðnum 1970. Mitt verkefni var að vísu á öðru sviði, en þó gat ekki farið hjá því, að nemendur innblésust af þeim anda, sem Jtarna sveif yfir vötnunum. Af einhverri ástæðu — líklega þeirri, hve lítið var þá í rauninni vitað um jarðfræði Islands — hafði Hess engan áhuga á I’slandi, og fyrir hans ráð fjallaði rannsóknarverk- efni mitt ekki um ísland. En þeirn mun ánægjulegri hefur þróunin orðið í skiln- ingi vorum á Islandi sem hluta heims- sprungukerfisins í seinni tíð; ég tel í ritaskránni fáeinar greinar íslendinga, Jrar sem Island er fellt inn í myndina: Gunnar Böðvarsson og G. P. L. Walker (1964) komu með líkan af uppbyggingu landsins, sem Guðmundur Pálmason (1973, 1980) útfærði enn frekar. Guð- mundur Pálmason og Kristján Sæ- mundsson (1974) skrifuðu yfirlitsgrein um stöðu Islands á hryggnum; Harald- ur Sigurðsson (1970) og Haukur Jóhannesson (1980) færðu fram skýr- ingu á myndun Snæfellsness í ljósi flekakenningarinnar, og Kristján Sæ- mundsson (1974) á myndun Tjörnes- brotabeltisins. Niels Oskarsson o. fl. (1981) gerðu tilraun til að útskýra upp- runa og dreifingu bergtegunda á íslandi í ljósi hnikþátta landsins. Tvær yfirlitsgreinar um „nýju jarð- 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.