Náttúrufræðingurinn - 1981, Blaðsíða 62
eðlisfræðingur. Efni: Setlagamyndanir og
jarðsaga íslandssvæðisins.
27. október:
Fyrirlesari: Freysteinn Sigurðsson jarð-
fræðingur. Efni: Jarðvatn á Reykjanesskaga.
24. nóvember:
Fyrirlesari: Snorri Sigurðsson skógfræð-
ingur. Efni: fslenska birkið.
Stjórnin vill þakka fyrirlesurum fyrir
þeirra framlag í þágu félagsstarfsins og
einnig öllum sem sóttu fyrirlestrasamkomur
á liðnu ári og lífguðu fundina með umræð-
um.
FRÆÐSLUFERÐIR
Sumarið 1980 voru að venju farnar fjórar
fræðsluferðir til náttúruskoðunar, þrjár eins
dags ferðir auk þriggjadagaferðar. Þátt-
takendur i ferðunum urðu alls 125, flestir i
löngu ferðinni 51. Ferðirnar voru þessar:
Uþpstigningardag 15. mai var farin fugla-
skoðunarferð hér um Innnesin og síðan
vestur á Garðskaga og Hafnarberg. Þátt-
takendur voru 27 og veður gott, sást margt
íslenskra varpfugla og flækinga. Leiðbein-
andi var Eriing Ólafsson skordýrafræðingur.
Sunnudag 29. júní var farin ferð upp í
Skorradal til að kynnast trjágróðri og skóg-
rækt. Ágúst Árnason skógarvörður kynnti
starfsemi Skógræktar Ríkisins i Skorradal,
hvaða rannsóknir þar eru gerðar og árangur
þeirra. Eyþór Einarsson grasafræðingur
leiðbeindi um annan gróður í skóglendinu.
Kjartan Thors jarðfræðingur var aðalfarar-
stjóri. Þátttakendur voru 25 og veður gott.
Fösludag 11. — sunnudag 13. júlí var langa
ferðin farin, að þessu sinni vestur á Snæ-
fellsnes. Fyrsta daginn var ekið vestur í
Hnappadal og gengið á Eldborg og Rauða-
melskúlu Ytri. Slðan var ekið vestur að
Lýsuhóli og tjaldað þar til tveggja nátta.
Annan daginn var þoka og suddi og gaf ekki
til uppgöngu á Helgrindur sem áformað
hafði verið. I staðinn voru nokkrar helstu
náttúruminjar skoðaðar á sunnanverðu nes-
inu, Hofgarðatjarnir, Bjarnarfoss, Búðir,
Arnarstapi o. fl. Síðasta daginn var veður
enn þungbúið. Þá var ekið útfyrir Jökul og
komið við i Maiarrifi. Steingervingar voru
skoðaðir við Ólafsvík og í Stöð. Þátttakend-
ur voru 51 eins og áður sagði. Leiðsögumenn
voru Haukur Jóhannesson jarðfræðingur,
Erling Ólafsson skordýrafræðingur og Ingi-
björg Svala Jónsdóttir.
Sunnudag 7. seplember var fjórða og síðasta
ferðin farin 1 Brennisteinsfjöll á Reykja-
nesskaga. Ekið var í Bláfjöll og gengið þaðan
vestur yfir hraunin að brennisteinsnámun-
um. Þar var áð og námusvæðið skoðað.
Þaðan var gengið á Kistu og siðan til baka
með viðkomu i Þríhnúkum. Gangan tók
rúmlega 8 tima. Veður var hið fegursta og
þátttakendur 22. Leiðbeinandi var Jón
Jónsson, jarðfræðingur.
Stjórnin þakkar öllum sem aðstoðuðu
hana við skipulagningu ferðanna og önnuð-
ust leiðsögn. Allt var það starf unnið endur-
gjaldslaust og með góðum huga. Að venju
var farið með bílum frá Guðmundi Jónas-
syni.
ÚTGÁFUSTARFSEMI OG AF-
GREIÐSLUMÁL
Af tímariti félagsins, Náttúrufrœðingnum,
komu út þrjú hefti á árinu alls 316 bls. Þetta
voru 2.—3. hefti og 4. hefti 49. árgangs og 1.
hefti 50. árgangs. Tvöfalda heftið í 49. ár-
gangi var tileinkað minningu Finns Guð-
mundssonar og inniheldur eingöngu dýra-
fræðilegar greinar auk æviágrips Finns og
ritskrár. Útgáfa Náttúrufræðingsins er enn
nokkuð á eftir og verður stefnt að því að ná
smám saman upp þeirri seinkun sem er á
útgáfunni. Kjartan Thors, jarðfræðingur
sem verið hefur ritstjóri Náttúrufræðingsins
frá árinu 1976 Iætur af ritstjórn með útkomu
lokaheftis 50. árg.
Stjórnin þakkar Kjartani vel unnin störf
og býður nýjan ritstjóra, Helga Torfason
jarðfræöing velkominn til starfa. Ritnefnd
Náttúrufræðingsins verður óbreytt. Ritið
var eins og áður prentað í prentsmiðjunni
Odda.
Náttúrufræðingurinn fyllir senn 50 ár-
ganga. Þessa merkisafmælis tímaritsins
verður minnst 1 1. hefti 51. árgangs með
56