Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 10

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 10
Tegundin Zonitoides nitidus (Múller, 1774) (vallbobbi) hefur lengi verið hálfgerður vafagemlingur í ís- lensku sniglafánunni. Bretarnir Armi- tage og McMillan (1963) segja frá ungu eintaki, sem fannst í Hveragerði á stríðsárunum. Snigillinn fannst á bakka volgs lækjar, en nánari stað- setning er ekki gefin upp. Nú hefur þessi tegund fundist á ný, — einmitt í nánd við Hveragerði. Allmörg eintök fundust í blautum mosa við volga laug innarlega í Reykjadal, 2-3 km frá Hveragerði, og einnig í gróðurhúsi í kauptúninu (J. Þ.). VANGAVELTUR UM ÚTBREIÐSLU Tuttugu og sex tegundir landkuð- unga hafa fundist hér á landi. Þrjár þeirra (Oxychilus draparnaudi (Beck, 1837), Zonitoides arboreus (Say, 1816), og Trichia hispida (Linné, 1758)) eru ótvírætt tengdar mannabú- stöðum. Ein til viðbótar (vallbobbinn) hefur einungis fundist við volgar laugar, og mætti ætla, að hún hafi borist þangað með mönnum vegna ræktunarstarfa. Engin gróðurhús eru þó í grennd, þótt Hveragerði sé vissu- lega ekki langt undan og tegundin hafi fundist þar. Á það ber einnig að líta, að til eru aðrar tegundir hryggleysingja, sem byggja tilvist sína hér nær ein- vörðungu á volgum lindum án þess að sérstök ástæða sé til að setja þær í samband við umsvif mannsins. Dæmi um þetta er laugaköngulóin (Pirata piraticus (Clerck, 1757)) (Brændega- ard 1958; Árni Einarsson, óbirt gögn). Af þeim 23 tegundum landkuðunga, sem hugsanlega hafa lifað hérlendis í aldaraðir, hafa 20 mjög áþekka út- breiðslu í NV-Evrópu. Þær hafa fund- ist víða um sunnanverða Skandinavíu og einnig á Bretlandseyjum (Kerney og Cameron 1979). Tvær hinna ný- fundnu tegunda eru í þessum hópi (gárastúfur og títubobbi). Um það bil 14 tegundir með svipaða útbreiðslu í NV-Evrópu hafa ekki fundist í náttúr- Iegu umhverfi á íslandi. Þrjár þeirra hafa fundist í Færeyjum (Lauria cyl- indracea (da Costa, 1778), Oxychilus cellarius (Muller, 1774) og Aegopin- ella nitidula (Draparnaud, 1805)) (Fog 1972, Solpy 1981). Þrjár tegundir skera sig úr ofan- greindu mynstri. Þetta eru Vertigo teg- undirnar V. modesta (Say, 1824) örðustúfur V. alpestris (Alder, 1938), (tannastúfur) og engjastúfur (V. lilljeborgi). Þær eru mun norrænni, eru útbreiddar í Skandinavíu, en sjald- gæfar eða ófundnar á Bretlandi og Færeyjum (Kerney og Cameron 1979, Solhóy 1981). Sex tegundir með norð- læga útbreiðslu sem líkist þessu, hafa ekki fundist á íslandi. Útbreiðsla birkistúfs hér á landi (4. mynd) virðist ólík útbreiðslu annarra landsnigia (sbr. Árni Einarsson 1977). Engin önnur tegund hefur svona sundurslitna dreifingu. Ennfremur er ókunnugt um aðra snigla sem byggja Vesturland öðrum landshlutum frem- ur. Búseta í Austur-Skaftafellssýslu kemur minna á óvart því að þar eru höfuðstöðvar langbobbans. Eyða í út- breiðslu birkistúfs í Húnavatnssýslum stafar líklega af því hve litlu hefur verið safnað þar af landdýrum. Hið sama á tæpast við um Austfirði og miðbik Suðurlands því að þar hefur mikið verið hugað að sniglum. 104
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.