Náttúrufræðingurinn - 1984, Blaðsíða 26
1. mynd. Kort af Hvammsfirði. Dökkir deplar sýna athuganastöðvar á langsniði og
ferningar sýnatökustaði við Keisbakka og Hjallanes. - A map of Hvammsfjörður on the
west coast of Iceland. The dots indicate stations on a section from the mouth to the bottom
of the fjord while the squares show the sampling stations off Keisbakki and Hjallanes.
október 1981, þegar sjávarhitinn var
áberandi hærri við Hjallanes (5°— 7°)
en Keisbakka (1°- 2°). Hámarki náði
hitinn í ágúst, um 11° við Hjallanes og
rúmlega 12° við Keisbakka, en lág-
mark hitans var í desember-janúar,
um -1.5° til -1.8°, sem er nálægt
frostmarki sjávar með seltuna 32-
33%o. Á rúmlega fjögurra mánaða
tímabili, frá því um miðjan nóvember
og þar til í lok mars, hélst sjávarhitinn
um eða undir 0°, og lengst af undir
— 1.5°. í meginatriðum fylgdu sveiflur
sjávarhitans samsvarandi sveiflum í
lofthita (2. mynd). Það er athyglisvert,
að nær allt árið var sjávarhiti hærri en
lofthiti, og á sumum árstímum var
munurinn talsverður. Þannig var sjáv
arhitinn um 2° hærri í júlí—ágúst, um
4° hærri á tímabilinu 15. október—15.
nóvember og um 2° hærri en lofthitinn
í desember-janúar.
í aðalatriðum fylgdi sjávarhitinn
í Hvammsfirði sjávarhitanum við
Stykkishólm (mælingar Veðurstofunn-
ar fyrir tímabilið apríl 1981 — apríl
1982). Helsti mismunur er sá, að fyrri
hluta sumars 1981 var sjávarhitinn inni
í firðinum 2°— 3° hærri en við Stykkis-
hólm, en 1°- 2° lægri yfir vetrarmán-
uðina. Almennt má segja, að sjávar-
hitinn í firðinum sé meira háður land-
rænum áhrifum og fylgi þar lofthitan-
um nánar en á sér stað við Stykkis-
hólm, þar sem áhrifa frá opnu hafi
gætir mun meira.
Seltan náði lágmarki í apríl 1981 við
Hjallanes (3. mynd) og komst þá niður
í um það bil 25%o, en hækkaði upp í
29.6%0 í lok apríl. Hún sveiflaðist
118