Náttúrufræðingurinn - 1984, Side 34
Trausti Jónsson:
Tvö veðurmet
Á árinu 1983 voru sett tvö veðurmet
hérlendis, sem ekkert var fjallað um í
fjölmiðlum og láta lítið yfir sér. Met
þessi eru þó hvert á sinn hátt það
merkileg að ástæða er að geta þeirra á
prenti.
I. Hinn 10. og 11. júní dýpkaði lægð
fyrir sunnan land og þrýstingur féll
mjög á landinu, mest þó sunnan lands.
Klukkan 7 að morgni þ. 11. var hann
kominn niður í 957,7 mb á Stórhöfða.
Þetta er lægsti þrýstingur sem vitað er
um í júní-mánuði á landinu. Einhvern
tíma hlýtur það þó að gerast að þrýst-
ingur verði lægstur. Sé litið á tíðni
lágþrýstings er venjulegast að næst-
lægsti þrýstingur hvers mánaðar sé
ekki mjög langt frá metinu. Sérstak-
lega á þetta við um sumarmánuðina.
Þetta met sem hér er til umræðu er
óvenjulegt að því leyti að það er
alllangt undir gamla metinu, en það
var 964,5 mb, frá 16. júní 1894.
II. Háloftaathuganir hófust almennt
upp úr síðari heimsstyrjöld. Mánað-
armeðaltöl um veðurfar í háloftum eru
því til frá þeim tíma að telja. Eins og
við er að búast hafa sveiflur í þessu
háloftaástandi verið töluverðar á
þessu tímabili. Eitt af þeim atriðum
sem alltaf er mælt í háloftaathugunum
er hæð frá jörð upp í ýmsa þrýstifleti.
Um það bil hálfa leið upp í veðrahvörf
er þrýstingur kominn niður í 500 mb.
Veðráttan í 500 mb-fletinum er nokk-
uð dæmigerð fyrir veðrahvolfið allt.
Allmikil árstíðarsveifla er í hæð 500 mb-
flatarins. Hann er talsvert hærra uppi
á sumrum en vetrum, auk þess sem
töluverð áraskipti eru í hæð flatarins.
Á sumrin eru oftast um 5500 m upp í
flötinn yfir íslandi, en á vetrum er
meðalhæðin hér í kringum 5250 m. í
janúar 1983 reyndist meðalhæð mán-
aðarins vera um 5060 m. Þetta er
lægsta mánaðarmeðaltal frá upphafi
mælinga og sennilega lægsta mánað-
armeðaltal frá því um 1920 eða e.t.v.
enn fyrr. Þetta þýðir að frá því um
1920 hefur heimsskautaloft ekki átt
greiðari aðgang að landinu þó svo hafi
viljað til í þetta sinn að það hafi komið
úr SV og því allnokkuð hitað af hafi.
Þetta er merkilegra fyrir þá sök að
janúar 1983 var ekki einn um að vera
með óvenjulega lágan 500 mb-flöt.
T.d. er ekki vitað um lægra septem-
bermeðaltal en 1982, auk þess sem lág
gildi voru viðloðandi mestöll árin 1982
og 1983. Þegar janúar 1984 var gerður
upp kom í ljós að aðeins er sjónarmun-
ur á honum og janúar 1983. Meðalhæð
500 mb-flatarins í janúar 1984 var um
5070 m. Munurinn á þessum tveim
mánuðum er þannig varla marktækur.
Þessi háloftamet eru merkustu atburð-
ir í veðurfarssögu landsins frá því haf-
ísinn sneri aftur 1965.
Náttúrufræðingurinn 53 (3-4), bls. 126, 1984
126