Náttúrufræðingurinn - 1984, Side 86
Tvö merkisafmæli
Árið 1983 voru liðin 100 og 200 ár
frá tveimur merkilegum eldgosum á
jörðinni. Fyrra gosið er Islendingum
vel þekkt, enda áhrif þess slík að jafn-
vel danska einokunarverslunin reynd-
ist hafa verið skárri. Eldgosið hófst í
Lakagígum þann 8. júní 1783 og stóð
til 7. janúar 1784. Á þessum mánuðum
gusu rúmlega 100 gígar á 25 km langri
sprungu og þekur hraunið nú um 565
km2. Rúmmál hraunsins reiknast um
12 km3 og er það mesta hraun sem
komið hefur upp í einu gosi á jörðinni
á sögulegum tíma. Um það bil 10.000
manns létust í þeim hörmungum sem
gosinu fylgdu og stór hluti búpenings
féll (80% sauðfjár, 76% hrossa og
50% nautgripa). Móðuharðindin, eins
og þeir hörmungartímar sem eftir
fylgdu voru nefndir, drógu nafn sitt af
„móðunni“, sem samanstóð af gasteg-
undum og gufu frá eldstöðvunum.
Gosgufurnar, og þá sérstaklega meng-
un af völdum flúors, urðu búpeningi
að bana. Mikið byggðarland fór undir
hraun og fjöldi bæja.
Hitt eldgosið er réttum hundrað
árum yngra og varð á eyjunni Krakatá
(Krakatau) sem er í Sunda sundi, milli
Jövu og Súmötru í Indónesíu. Þann
20. maí 1883 hófst eldgos norðan á
Krakatá. Eyjan var óbyggð en óljósar
heimildir voru fyrir miklu öskugosi á
Krakatá á tímabilinu maí 1680 — nóv-
ember 1681, svo ekki komu jarðhrær-
ingar þessar á óvart. Hollenskir vís-
indamenn fóru til eyjarinnar þann 27.
maí og gaus þá í gíg fjallsins Perboew-
etan sem er nyrst á eynni. Heldur dró
úr gosinu fram til 19. júní er það færð-
ist aftur í aukana, og í lok júní voru
gosstrókarnir orðnir tveir. Sífellt
öskufall var og miklar sprengingar.
Allan júlí hélt gosið áfram en hápunkt-
ur gossins varð 26. og 27. ágúst. Klukk-
an eitt e.h. þann 26. hófust miklar
sprengingar á nál. 10 mínútna fresti.
Stærstu sprengingarnar urðu síðan kl.
05.30, 06.44, 10.02 og 10.52 þann 27.
ágúst. Sprengingar þessar vöktu fólk í
yfir 3000 km fjarlægð og heyrðust til
Ástralíu í yfir 4800 km fjarlægð.
Afleiðingar gossins urðu ótrúlegar.
Tveir þriðju hlutar eyjunnar hurfu og
varð þar 300 m sjávardýpi sem áður
voru yfir 300 m há fjöll. Gífurleg flóð-
bylgja skall á nálægar strendur og fór-
ust yfir 36.000 manns. Um kl. 14.30
þann 28. ágúst hljóðnuðu síðustu
sprengingarnar þessa eins mesta eld-
goss sögunnar. Askan frá eldgosinu
þakti þúsundir ferkílómetra og
reiknað hefur verið út að rúmmál gos-
efnanna hafi verið 18 km3. Myndast
hafði geysistór askja, 20 km í þvermál
með nokkur hundruð metra sjávar-
dýpi.
Eftir þetta gos varð hlé í 44 ár en
árið 1927 myndaðist eyjan Anak
Krakatá (barn Krakatár) í eldgosi
innan öskjunnar. Á tímabilinu 1927 til
1980 hafa orðið 29 eldgos innan öskj-
unnar, en öll hafa þau verið lítil.
Helgi Torfason
Náttúrufrædingurinn 53 (3-4), hls. 176, 1984
176