Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 100

Náttúrufræðingurinn - 1984, Page 100
RITFREGNIR ÁGRIP AF JARÐFRÆÐI ÍSLANDS Ari Trausti Guðmundsson Útgefandi: Örn og Örlygur hf. Reykjavík, 1982, 186 bls. Það verður að teljast næsta mikið í lagt af einum manni án sérmenntunar í al- mennri jarðfræði að leggja út í að skrifa bók sem ætluð er að „vera kennslubók í jarðfræði framhaldsskóla“ (fyrir virðist þarna hafa fallið niður) og „almenningi handhægt fræðslurit“, jafnvel þótt um „á- grip“ sé að ræða. Raunar er það svo að jarðfræðin er á vorum dögum orðin það umfangsmikil vísindagrein að varla er á nokkurs eins manns færi að setja saman góða kennslubók í þeirri fræðigrein. Þar er hópvinna ekki bara æskileg heldur nauð- synleg. Ekki er komið langt í lestri þessarar bókar þegar maður rekst á ýmislegt sem erfitt er að fella sig við. Bókin er skrifuð í fljótfærnislegum dagblaðastíl. Skil- greiningar á hugtökum vantar víða. Ekki kann ég við orð eins og „jarðvirkni“ og „hnik“ og ekki eru þau hugtök skilgreind, gæti þó vafist fyrir unglingum að finna út hvað átt er við. Að nota hið gatslitna orð staðsetning fyrir hnattstöðu er vægast sagt óþarft. Það er ekki ætlunin að tína hér til öll þau atriði, sem lýta þessa bók, en vart verður hjá komist að benda á ýmislegt. Skal þá fyrst tekið til við berggrunnskortið á bls. 31. í texta undir myndinni er þess getið að kortið sé tekið eftir riti Náms- gagnastofnunar. Mér skilst að hlutverk þeirrar stofnunar sé m.a. að sjá skólum landsins fyrir námsgögnum. Sé þar rétt skilið, er þeirri stofnun sannarlega mál að fara að athuga sinn gang. Ég get ekki ætlað höfundi að hafa að athuguðu máli sett slíkt kort í bók sína. Þarna er verulegur hluti Reykjanesskaga sýndur sem berg eldra en 3 millj. ára og hvaðan kemur vissan um svo gamlan berggrunn undir Skeiðarársandi; eða um 700 þús. — millj. ára gamalt berg í miðju gosbeltinu norðan Vatnajökuls? Sérhver lesandi mun að sjálfsögðu sjá að það er fljótfærni að telja Grænalón meðal gígvatna (tafla á bls. 138). Varla er heppi- legt að telja Snæfellsjökul meðal þeirra sem eru „utan í hlíðum fjalla“. Að jökull verði að jafnaði brattari við það að hopa er nokkuð, sem varla margir kannast við (skýring við mynd á bls. 142). Ónákvæmt er að telja Leitin vera á Hellisheiði (bls. 34). Ástæða hefði verið fyrir höfundinn að hann kynnti sér nýjustu niðurstöður um myndun Baulu í Norðurárdal. Kaflinn um jarðhita er ruglingslegur. Ástæða hefði verið til að greina betur frá þeirri skil- greiningu á háhita og lághita, sem lengi hefur verið almennt notuð hér á landi. Á kortinu bls. 29 er + látið tákna: „laug, hver eða heitavatnshola á lághitasvæði". Náttúrufræðingurinn 53 (3-4), bls. 190-192, 1984 190
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.