Náttúrufræðingurinn - 1935, Side 14
58 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
VIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIII1111111IIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIUIIII || || 1111111111III lllllllllllllllllllllllllllllllllt
C. Munnröndin annað hvort afturbeygð, eða þá þykk.
D. Kuðungur meira eða minna flatvaxinn, loðinn. Nafla-
opið, neðan á kuðungnum, við munnann, greinilegt.
5— 6 snúningar. H: 4y>—6. Þ: 7—9y2 mm. Vafa-
samt, hvort tegundin hefur fundist hér.
Loðsnigill (Hygromia hispida, I, 6).
D. Kuðungurinn hnöttóttur, eða því sem næst. 5—6
snúningar. H: 16—20 mm. Þ: 20—24 mm. Nafla-
opið hálflokað. Fundin á Austurlandi.
Lyngbobbi (Helicigona arbustorum, II, 7).
D. Kuðungur nærri hnöttóttur. 4y>—5 snúningar. H:
12—15 mm. Þ: 18—21 mm. Naflaopið lokað, sést
ekki. Víða fundinn hér.
Brekkubobbi (Helix hortensis, II, 8).
B. Kuðungurinn hærri en hann er breiður.
C. Kuðungurinn ógagnsær.
D. Kuðungurinn kylfulaga. Munnopið hjartalaga. Frá
munnröndinni ganga bríkur inn í munnann. H. 2—
2l/2 mm. Þ: 1—íy^ mm. 5—514 snúningar.
Tannbobbi (Vertigo antivertigo, II, 9).
D. Kuðungurinn nærri sívalur. Munnopið hálf-mána-
laga. Engar bríkur. H: 3—4 mm. Þ: tæpl. 2 mm.
6— 7 snúningar.
Svepjmbobbi (Pupilla muscorum, II, 10).
C. Kuðungurinn gagnsær.
D. Lengd munnopsins nemur tæplega einum þriðja
hæðarinnar. H: 6 mm. Þ. 2*4 mm. ði/2—6, nokkuð
jafnir snúningar. Fundist á nokkrum stöðum.
Eggbobbi (Cochlicopa lubrica, II, 11).
D. Lengd munnopsins nemur meira en helming hæð-
arinnar. H: 15—22 mm. Þ: 9—12 mm. 3 snúning-
ar, eða rúmlega það. Sá neðsti margfalt breiðari
en allir hinir samanlagt. Fundinn"a nokkrum
stöðum..............Ránbobbi (Succinea putris, II, 12).