Náttúrufræðingurinn - 1935, Síða 19
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 6£
11111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
hefir tæmt þau. Eitt einasta skipti hefir mér tekizt að finna
óhreyft forðabúr. Refurinn hafði komið þangað skömmu áður,
en hefir flúið burtu af einhverjum ástæðum. Það var í kletta-
skoru og var hálfs metra þykkt snjólag yfir því. Á botni skor-
unnar lágu 36 haftirðlar, 2 langvíuungar og 4 snjótittlingar, og auk
þess talsvert af haftirðilseggjum. Fuglarnir voru frosnir og var
þeim skipulega raðað á botninn, og eggjunum var hlaðið upp
með klettinum. Þetta hlaut að vera að minnsta kosti mánaðar-
forði handa einu dýri, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess,
að rebbi þarf ekki að lifa á þessu einvörðungu, heldur tekst að
ná sér í eitthvað af fæðu á annan hátt. Og þegar þess er gætt,
að sama dýrið mun gera sér fleiri slík forðabúr, verður það
skiljanlegra hve tiltölulega mikið er um refi á Norðaustur-
Grænlandi og að þeir komast heilu og höldnu yfir veturinn, þó
að þeir fáu úlfar, sem þar eru, verði að svelta“.
Væri gaman að frétta það, ef menn vissu um það með-
sanni, að hérlendir refir geymdu sér matarforða til vetrarins,
eins og frændur þeirra á Grænlandi.
Þó að það skipti ekki máli í þessu sambandi, tek eg hér
upp það, sem höf. segir um ferðalag refsins á hafísnum.
,,Undir vorið, þegar ísbjörninn fer að veiða seli á lagísnum
og meðfram ströndinni, eltir refurinn hann oft og hirðir leif-
arnar af máltíðum hans. 1 því, sem björninn leggur af sér, er
oft ýmislegt ómelt, &em refurinn gerir sér að góðu. En sjálfur
fer hann einnig á selaveiðar; með lyktnæmi sínu finnur hann
gotstöðvar selanna undir snjónum og grefur sig niður að kóp-
unum (selurinn kæpir á ísnum undir snjónum).
Þegar vorar fer refurinn yfirleitt mest á ísnum og oft langt
frá landi. Þá ber það við, að hann kemst út á lausan, jaka, sem
rekur burtu, og hann kemst ekki aftur á fasta ísinn eða til
lands. Slíkir refir hafa hizt í 90 sjómílna fjarlægð frá landi..
Þeir voru jafnan aðframkomnir og komu alveg að skipunum,
hefir meira að segja komið fyrir, að þeir læddust upp á skip-
til þess að seðja hungur sitt á hverju því, er til náðist“.
Milli Islands og Grænlands eru aðeins 160 sjómílur, þar
sem styzt er, og má ætla, að refa ,,samgöngur“ séu tíðari þar
á milli en menn almennt hafa haldið.
Ársæll Árnason.