Náttúrufræðingurinn - 1935, Side 48
92 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
111IIIII111■ IIIII111II1111IIIIIIII1111II111111111II11111II111111111MII11.11111IIIII11111111111111111111111111111111II1111II111IIIIIIIIII11111111111 ■ 1111III B
Ritfregnir.
„Vísindafélag íslendinga“ hefir undanfarin ár gefið út 16 „rit“, um
ýmis efni, er snerta íslenzka tungu og íslenzka náttúrufræði, öll eftir ís-
lenzka vísindamenn. Auk þess hefir félagið gefið út 2 „skýrslur". Nú hefir
það ráðist í að gefa út „greinar“, þar sem prenta skal ýmislegt það, sem
er of stutt til þess að fylla eitt hefti „ritanna", og ritgerðir um rannsóknir,
sem ekki er lokið. Fyrsta hefti þessara „greina" er nú nýkomið út, og hefir
að geyma þær ritgerðir, sem hér eru taldar:
Giinther Timmermann: Drei Aufsatze zur islandischen Ornithologie.
1. Einige Bcmerkungen zu Masa U. Hachisuka, A Handbook of the
Birds of Iceland, London, 1927.
Japanski fuglafræðingurinn Hachisuka ferðaðist hér um landið sum-
arið 1925, kynnti sér fuglaheiminn, og skrifaði bók um árangur fararinnar,
og kom hún út i London 1927. Þótt höfundurinn nefndi þessa bók sína
„handbók", var þó langt frá því að hún stæði framar eldri bókum, sem
aðrir höfðu ritað um íslenzka fugla, öðru nær. Dr. Timmermann bendir
réttilega á ýmsar villur og missagnir, sem eru í bókinni, þeim útlending-
um til aðvörunar, sem kynnu að taka hana of ,,hátiðlega“.
2. Uber den sogenannten atlantischen Austernfischer.
Þessi ritgerð er um tjaldinn. Fyrst er vikið að tilraunum annarra
fuglafræðinga til þess að gera tjaldinn, sem hér á heima, að sérstöku af-
brigði; telur dr. Timmermann það ekki réttmætt. Tilraunir þessar styðjast
við ýmsar mælingar, sem höfundurinn telur hæpnar, og birtir hann sínu
máli til sönnunar mælingar, sem hann hefir gert. Síðan gerir hann grein
fyrir rannsóknum sínum á fæðu tjaldsins, og þar kennir auðsjáanlega
margra grasa. Bendir hann á það, að nákuðungurinn (Purpura lapillus)
sé mikill liður fæðunnar, og getur þess til, að útbreiðsla tjaldsins falli því
að nokkru saman við útbreiðslu nákuðungsins hér við land, þ. e. hina heitari
landshluta.
3. Uber den islándischen Zaunkönig.
í þessari grein birtir höf. rannsóknir sínar á íslenzka músarrindlinum,.
um leið og hann gagnrýnir þær rannsóknir, sem aðrir hafa gert. Hefir hann
mælt allmarga fugla, og rannsakað fæðu þeirra, og ýmislegt annað viðvíkj-
andi lifnaðarháttunum.
Geir Gígja: Coleoptera auf dem isiándischen Hochland.
Höfundurinn telur hér þær tegundir af bjöllum, sem fundizt hafa á
hálendinu. Fyrst getur hann um, hvernig gróðri sé háttað, og telur helztu
blómplöntur, sem vaxa á hverju gróðurlendi, en síðan telur hann þær teg-
undir af bjöllum, sem fundizt hafa, og getur um fundarstaði hverrar
tegundar.