Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1939, Qupperneq 13

Náttúrufræðingurinn - 1939, Qupperneq 13
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 7 iiiiiiiiiiiiMiiiiimmiiiiiiiimimmimiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimimmiiiiiiiiiimimiiiiimiiniimmiimimiiiimi 2. taíla. StærS á murtu eítir Uynferði. Mánaðardagur: Fjöldi: Meðallengd, cm. Mismunur. Hrygnur: Hængar: Hrygnur: Hængar: 23,—25./9 ’37 98 991 25.24 22.79 2.45 10.—14./10.38 190 210 24.43 22.42 2.01 Það er því ljóst, að hrygnurnar eru yfirleitt mun stærri en hængarnir, og munurinn er 8—10%, eða um 2.0—2.5 cm. Einnig er greinilegt, ef litið er á töfluna, að bæði hrygnur og hængar hafa verið smærri í október 1938 en í september 1937. Þetta staf- ar tæplega af því, að borin eru saman tvö ár, með mismunandi aldurssamsetningu aflans, því að árið 1937 mátti vel sjá, að meðal- stærðin (lengdin) fór minnkandi, eftir því sem á leið. Þannig var þá meðallengdin á 1200 murtum, mældum 23.—28. sept., 23.01 cm, 3. tafla. Hrygnufjöldinn í pröcent af allri murtu. Mánaðardagur: Fjöldi rannsakaður: Far af hrygnur °/0 23.-25./ 9’37 1089 9-0°/o 28./ 9 — 100 27.0% 5.— 6./10 — 298 38.0% 7.—13./10 — 296 44.3% 16./10 — 99 33.3% á 398 murtum, mældum 1.—7. okt., 22.66 cm og á 295 murtum, mældum 9.—16. okt., um það leyti, sem veiðin var að hætta, að- eins 22.42 cm. Önnur breyting á stærðinni er í því fólgin, að murta sú, sem veiðzt hefir síðustu ár, virðist stærri en murtan, sem veiddist þegar dr. Bjarni Sæmundsson var að vinna við sínar rannsóknir. Hann getur þess í fiskabók sinni (B. Sæm.: Fiskarnir, 1926, bls. 368), að murtan sé frá 16 upp í 25 cm að stærð, en eins og 1. tafla hér ber með sér, þá náði stærðin 1937 alla leið upp í 32 cm, þótt það væri að vísu undantekning, en nærri 7 % voru þó yfir 25 cm, en engin undir 18. Ef til vill stafar þessi stækkun að nokkru leyti af stærri riðli nú en þá, en ég held þó heldur, að hún stafi af betri vaxtarskilyrðum í vatninu á síðari árum, eins og síðar skal verða vikið að. Um þorskinn er það kunnugt, að þegar hrygning stendur yfir, þá ber mest á hængunum. Á hinn bóginn breytist fjöldahlutfallið

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.