Náttúrufræðingurinn - 1939, Blaðsíða 35
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 29
iliiimmimmiiiimiiiiiiiiiiiiiimmmiiiiiiimimiiimiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiMimiiiiiiimiiHiiiiimmiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
VIII. NIÐURLAGSORÐ.
Þó að hér hafi verið gerð grein fyrir þeim árangri, sem náðzt
hefir með rannsókn murtunnar í Þingvallavatni, enn sem komið er,
þá er ekki svo að skilja, að þeim rannsóknum sé nú lokið. Öðru
nær. Verkefni þau, sem framundan eru, eru mörg. í fyrsta lagi
verður á næstunni, eins og að framan er sagt, unnið úr þeim gögn-
um, sem safnað hefir verið tii aldursákvarðana, og á komandi ár-
um verður að halda áfram að safna slíkum gögnum, og vinna úr
þeim, til þess að hægt verði að fylgjast með árganga-sveiflum í
murtustofninum. Einnig verður að taka það til greina, að murtan
er að verða þýðingarmeiri en áður var. Hún er nú meira að segja
að verða útflutningsvara, sem svo mikil eftirsókn er eftir, að ekki
er hægt að fullnægja eftirspurninni. Á næstu árum þyrfti að
merkja murtu, á einn eða annan hátt, meðal annars til þess að
komast fyrir um það, hve oft hún hrygnir, hvort sama murtan
gengur ár eftir ár á sömu riðin, og hve mikið deyr af henni ár-
lega. Einnig myndi endurveiði veiddrar murtu gefa upplýsingar
um það, hve nærri veiðin gengur stofninum. Þá er eitt viðfangs-
efnið að klekja murtu. Eða hví ekki að rækta hana, eins og aðrar
verðmætar laxfiska-tegundir ? Fyrirkomulagið á klakinu myndi
fara nokkuð eí'tir því, hvaða niðurstöður merkingarnar gæfu.
Og svo eru til önnur vötn en Þingvallavatn, og aðrir vatna-
fiskar en murtan. Ár og vötn á Islandi eiga sjálfsagt í sér fólgin
mörg leyndarmál og mörg viðfangsefni, sem landsmönnum kæmi
að gagni að yrðu leyst. Og enda þótt Fiskideild Atvinnudeildar-
innar sé við þvi búm, að gera skyidu sína þar til hins ítrasta, þá
má þó ekki gleyma því, að þunginn af stari'i hennar verður að
koma niður á annan stað. Aðal-starfssvíð deildarinnar er og verð-
ur alltaí fiskirannsóknir í sjó. Þó geng eg þess ekki dulmn, að
rannsóknir á vötnum og vatnafiskum eru jafn aðkallandi fyrir
bóndann eins og hafrannsóknirnar fyrir útgerðina.
Um leið og eg lýk þessari ritgjörð, vil eg þakka þeim mönnum,
sem á ýmsan hátt hafa aðstoðað mig við þessar rannsóknir, og
eiga sinn þátt í árangri þeirra eins og eg. Aðstoðarmaður minn,
Sigurleif'ur Vagnsson, hefir þannig framkvæmt allar talningar,