Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 21

Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 21
NÁTTÚRUPRÆÐINGURINN 15 tiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiixiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitkiiiiiiiiir Til þess að hægt sé að átta sig á töflunni, skal það tekið fram, að I—III er óþroskuð murta, sem ekki hrygnir það ár, sem um er að ræða. Hefir hún sennilega slæðzt á grunn með hinni murtunni, sem öll er kynþroska. IV er murta með svo þroskuðum eggjum og sviljum, að hún hrygnir síðast á hrygningartímanum. V er alveg komin að hrygningu, en VI er að hrygna. Loks er VII murta, sem þegar er búin að hrygna (blóðmurta), og VIII er þegar orðin hálfgróin eftir hrygningu og komin yfir blóðmurtustigið. Taflan sýnir okkur því, að að minnsta kosti 96.1 % af murtunni, sem veiðist á riðunum á haustin, á annaðhvort fyrir sér að hrygna á árinu, er að hrygna eða hefir hrygnt. Aðeins 3.9 % hrygna ekki, og þó er alls ekki loku fyrir það skotið, að eitthvað af þeirri murtu hafi hrygnt svo snemma, að ekki sé hægt að sjá þar skil á. Ferð murtunnar upp að ströndum vatnsins má því teljast hrein hrygn- ingarganga. Eins og áður hefir verið bent á, mun aðalhrygningartími murt- unnar vera fyrri helmingur októbermánaðar. Murtan fer að ganga að landi í júlí (sumarmurtaj, hængarnir koma fyrst, til þess að hreinsa riðin, og þeir virðast einnig, eins og áður er getið, hverfa þaðan seinna en hrygnurnar. Hrygningin fer aðallega fram á nótt- unni, og er það í góðu samræmi við það, sem sagt er, að murtan hverfi af grunni, jafnvel þótt hrygning standi sem hæst, ef jörð verði hvít af snjó. Hve langan tíma eggin þurfa til þess að klekjast, er ekki kunn- ugt, svo ég viti til. Líklegt er, eins og sýnt var fram á, þegar rætt var um aldur murtunnar, að þau klekjist ekki fyr en seint á næsta vori, eða fyrra hluta næsta sumars. Hvar seiðin halda sig eftir að þau koma úr eggjunum, og hvar ungmurtan hefst við, er enn þá ókunnugt. Hrygning murtunnar fer fram þar sem botn er nokk- uð harður, og líklega helzt þar sem uppsprettur eru eða einhver vottur straums, á ca. 50—600 cm dýpi. IV. MURTA OG BLEIKJA. Við komum nú að því að athuga, hvort murtan í Þingvallavatni er ung bleikja, eða sérstakt bleikju-afbrigði, sem aldrei verður stærra. Það eina, sem all-fast virðist mæla á móti því, að murtan sé sérstakt afbrigði, eru merkingar dr. Bjarna Sæmundssonar, sem fyrr er getið. Því nokkrar af murtunum, sem hann merkti (lét

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.