Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 25
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Íð
........iiiii...........................
300, eða með öðrum orðum sama og engar. Þegar tekið er tillit
til þess möguleika, sem er fyrir hendi, að eitthvað sé í óþroskuðu
murtunni af bleikju og eitthvað í ungbleikjunni af óþroskaðri
murtu, þá má fullyrða, að mestur hlutinn af óþroskuðu murtunni
er það sama og þroskaða murtan, en alveg frábrugðið mestum
hlutanum af ungbleikjunni. Og þar sem ungbleikjan er það sama
og stórbleikjan, þá hlýtur megnið af óþroskuðu murtunni að vera
annað en stórbleikjan, eða með öðrum orðwn ókynþroska murta.
7. tafla. Lengd á murtu Cve*dd 1914) og stórbleibju (veidd 1913).
Aldur: Bleikja, cm.: Murta cm.:
1 árs 4.2 4.3
2 ára 8.2 8.2
3 — 12.4 12.7
4 — 17.2 16.7
5 — 22.5 19.7
6 — 27.6
7 — 33.0
8 — 37.4
9 — 39.5
2. Vaxtarhraðinn. Þegar sleppt er 1—2% af murtunni, eða
hluta af þeim fiski, sem er ókynþroska (3.09%), og komið getur
til mála að sé ung bleikja, þá hafa hryggjaliðatalningarnar sýnt
það deginum ljósara, að murtan, þ. e. 20—29 cm „bleikjan", sem
hrygnir í Þingvallavatni í sept.—okt., er öldungis frábrugðin
bleikjunni í vatninu. Hún er afbrigði fyrir sig (Salmo alpinus f.
murta), sem verður kynþroska þegar hún hefir náð „murtu-stærð“,
og stækkar lítið sem ekkert úr því (sbr. bls. 11). Þessi árangur
af rannsóknunum, sem við höfum gert tvö undanfarin ár, er svo
ljós, að við þurfum í raun og veru ekki frekar vitnanna við. Þó
þykir mér rétt að benda á ýmislegt annað, sem ótvírætt virðist
leiða okkur að sama marki.
Því miður hefir hreistrið á þeirri murtu, sem við höfum rann-
sakað, ekki ennþá verið athugað, svo við getum ekki ennþá sagt
neitt um vöxt hennar, né heldur bleikjunnar á fyrstu árum æfinn-
ar. En það vill svo vel til, að um þetta eru til nokkurar heimildir
eftir rannsóknum K. Dahls, og vil eg nú athuga þær lítið eitt hér
(B. Sæm. 1917, bls. 127). Eg verð að skjóta því hér inn, að það er
hægt að sjá á hreistrinu, hve mikið fiskurinn hefir vaxið á hverju
2*