Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1941, Qupperneq 21

Náttúrufræðingurinn - 1941, Qupperneq 21
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 15 NÁTTÚRUFRÆÐINGUmNN TÍU ÁRA GAIVIALL Með þessu hefti hefst ellefti árgangui' Náttúrufræðingsins og er þar með tíu árgögnum lokið. Þessir tíu árgangar eru hinir eigulegustu og kærkomnir öllum þeim, sem unha náttúrunni eða náttúruvísindunum. Fyrir bókamenn er Náttúrufræðingurinn einnig mikils virði, og hann hefir jafnan haft eitthvað öllum að færa, jafnt börnum, sem byrjuð eru að lesa, og hugsandi, fullorðnu fólki. Þessir tíu árgangar, sem komnir eru á prent, eru röskar 1900 blaðsíður með ca 480 greinum og um 420 mynd- um. Allur þorri greinanna er ritaður við alþýðu hæfi og á hver maður að geta tileinkað sér efni þeirra undirbúningslaust, hvort sem hann er skólagenginn eða ekki. Þessar 480 greinar og rit- gjörðir eru skrifaðar af nærri 100 höfundum, og eru þær allar um náttúrufræði. Sumar þeirra eru allmiklar ritgjörðir, en aðrar eru styttri. Náttúrufræðingurinn hefir í þau tíu ár, sem liðin eru síðan hann hóf göngu, gert sér far um að gegna tveimur skyldum. I fyrsta lagi hefir hann leitazt við að fræða alþýðu manna um náttúrufræði, nýtt og gamalt, til gagns eða gamans, og vona ég að segja megi, að sú fræðsla sé nú þegar orðin allyfirgripsmikil. Þá er efni það, sem ritið hefir tekið til meðferðar, æði víðfemt. Þar er ef til vill mest um dýrafræði, en einnig mikið um jarð- fræði, jurtafræði, landafræði, mannfræði og margt fleira, sem óþarft er að telja. í öðru lagi hefir Náttúrufræðingurinn orðið vettvangur fyrir ýmsar ritgjörðir íslenzkra vísindamanna, enda þótt þær ættu ekki beint erindi til alls þorra almennings. Flestar þessar rigjörðir eru mjög mikils virði sem uppistaða í, eða heim- ildir til vísindalegra ritgjörða, sem síðar kunna að koma. í þenn- an flokk koma t .d. flórulistarnir. Álít ég vel' farið að Náttúru- fræðingurinn hefir haft bolmagn til þess að veita þeim mót- töku, þar sem ella myndi oft hafa reynzt erfitt að koma þeim fyrir almenningssjónir jafnfljótt og Náttúrufræðingurinn gaf skilyrði til. Náttúrufræðingurinn þakkar öllum vinum sínum fyrir samúð og traust á meðan hann átti erfiðast uppdráttar, á bernskuár- unum, og vonar að samúðin mégi haldast og vinunum fjölga á næstu tíu árum. Á. F.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.