Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1943, Qupperneq 13

Náttúrufræðingurinn - 1943, Qupperneq 13
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 7 þrengsli með hávöðum neðan við lygnuna. Þar komu nú upp klett- ar og sker, sem aldrei liefir bólað á síðan 1924. Hjá Selfossi var áin hezl athuguð, meðan á þurrðinni stóð, enda er þar fjölmennast, og þar var auk þess skaplegast veður. Áin (sem hér heitir Ölfusá) er mjög straumhörð undir brúnni og of- an við hana. Hún rennur í þrengslum og verður enn mjórri en hjá Arhrauni. Ofan við brúna rennur mesti vatnsflaumurinn i djúp- um ál, sem líkist sprungu og mun vera tæpur helmingur af breidd allrar árinnar. Þegar meðalvatn er i ánni, sér vel fyrir þessum ál af straumlaginu, en ekki í vatnavöxtum. Állinn er nær ytri (nyrðri) bakkanum — og fast upp við hann, þegar kemur nokkur hundruð metra upp fyrir brúna. Á eystri (syðri) harmi ólsins standa tveii klettahólmar eða drangar upp úr ánni. Þangað er vætt í klofháum vaðstígvélum, þegar áin er með minnsta móti. En 11. nóv. voru I.lappirnar þurrar báðum megin álsins og hann sjálfur tæplega barmafullur. Jón Ingvarsson gekk þarna nokkurn spöl eftir klöpp unum og taldi hann vatnsborðið hafa lækkað um 1 m undir meðal- hæð, eins og fyrr var getið. Um hegðun Hvítár fyrir ofan Árhraun er það skemmst frá að segja, að þar varð hvergi vart neinna verulegra missmíða iá lienni þenna sama dag, sem þurrðin varð fyrir neðan Árhraun. Þó ei ekki þar með sagt, að vatnsmagn liennar þar liafi þá verið óbreytt né útlitið venjulegt. — En áður en lengra verður farið út í þá sálma, er nauðsynlegt að segja nokkuð frá veðrinu. Eins og þegar hefir verið gefið i skyn, geisaði ofviðri á þessum slóðum daginn, sem þurrðarinnar varð vart í Hvítá, en veðrið gekk nokkuð misjafnt yfir. Yfirleitt var suðaustanrok og livass- viðri um morguninn og rigning. En um hádegi hvessli enn og gerði afspyrnurok á sunnan, og sums slaðar snerist áttin til útsuðurs. Með kvöldinu slotaði veðrinu og var orðið kyrrt um háttatíma. Mikil úrkoma var víðast hvar allan daginn fram undir kvöld. Á Selfossi var ýmist rigning eða krepja, en aldrei festi þó snjó í Flóa né Ölfusi. Uppi á Skeiðum og í Grímsnesi breyttist úrkoman i snjó um hádegisbil. í Árhrauni snjóaði nokkuð, og dró snjóinn saman í skafla norðan á móti, en festi lítt á jafnsléttu. Á Iðu snjó- aði meir, gerði alhvitt og allmikla skafla. Einar bóndi Sigur- finnsson gizkaði á, að þar myndi hafa verið 1—2 stiga frost. Uppi í Hreppum var mikil snjókoma, svo að fé fennti og var grafið úr fönn daginn eftir. Er ég var þarna á ferð, 2—3 dögum eftir ofviðr- ið, var alautt niðri í Ölfusi og Flóa, en þegar kom upp í Merkur- hraun (fremst á Skeiðunum), brá snögglega svo við, að þar var
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.