Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 32

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 32
24 NÁTT ÚRUFRÆÐINGURINN Steindór Steindórsson frá Hlöðum: Gróðurrannsóknir íslands II. I. Héraðsflórur. Árið 1933 skrifaði eg slulta grein um gróðurrannsókn Islands, þar sem eg gerði tillögur um skipulagsbundið slarf í þá iátt, að gerð yrði lieildarrannsókn á gróðri landsins. Skoraði eg þar á þá, sem grasfræði unna hvarvetna um land að hefjast handa um starf þetta. Þá hirti eg einnig yfirlit um það, live stórt svæði aí' Iandinu mætti teljast nákvæmlega rannsakað, og fylgdi grein- inni kort, er sýndi úthreiðslu hinna rannsökuðu svæða. Enda þótt dálítið hafi verið á máli þessu alið síðan, hefir samt árangurinn af þessum tillögum ekki orðið mikill, en hinsvegar liefir samt verið meira unnið að gróðurrannsókn landsins á þessum siðustu árum en nokkru sinni fyr. Auk náttúrufræðinganna, sem stöðugt fcr nokkuð fjölgandi hafa einnig nokkrir áhugamenn verið hér að verki og unnið þarft og gott starf. Fer hér á eftir yfirlit yfir það, sem mér er kunnugt af rannsóknum þessum ásamt kortrissi af hinum rannsökuðu svæðum (1. md.). Yfirlit þetla er tekið saman hæði eftir prerituðum heimildum og munnlegum og bréflegum frásögnum. Á kortinu eru þau svæði, sem getur í fyrri ritgerð minni skástrikuð, nýju svæðin eru krossstrikuð, en nokkur svæði sem mér var annaðhvort ekki fullkunnugt um, hvort gerð hafi verið um þau sérflóra, eða því starfi er ekki enn lokið, eru merkt með stuttum strikum. Hin rannsökuðu svæði eru þessi og eru töl- urnar hinar sömu og á kortinu. 1. Suðurströnd Reykjanesskaga ásamt nágrenni Reykjavíkur, Yiðey, Engey og Örfirisey, Ingólfur Davíðsson. Skýrsla Nátt- úrufræðifélagsins og Nátlúrufræðingurinn 1938 og 1939. 2. Aðalvík og Hesteyri, sami, Náttúrufræðingurinn 1937. 3. Mýrdalur, sami, Náttúrufræðingurinn 1939. 4. Borgarfjörður eystra, sami, Náttúrfræðingurinn 1911. 5. Árskógsströnd við Eyjafjörð, sami, Náttúrufræðingurinn 1940. (). Bitra, Bæjarhreppur og Holtavörðuheiði, Guðbrandur Magn- ússon, Náttúrufræðingurinn 1934 og 1937. 7. Suður-Þingeyjarsýsla austan Vaðlaheiðar og Flateyjardals, Helgi Jónasson. Af þessu svæði var Aðaldalur áður skoðaður.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.