Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 56

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 56
48 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN — Flóra Melrákkasléttu, Náttúrufr. XI. 1941. — Gróðurrannsóknir í Þjórsárdal I. Ársrit Skógræktarfél. ísl. 1941. Akureyri, 10. febr. 1942. Jón Steffensen: N/ íslenzk hjálmgrastegund. 25. júií 1937 var ég á ferð iun Grafninginn og fann þá lijálm- grastegund, er nefnist Galeopsis Ládanum L. Hún óx innan um lynggróður skammt frá veginum, þar sem hann liggur um Jóru- kleif, og voru flest eintökin i blóma. Sumarið 1940 kom ég aftur á jjessar sömu slóðir, en varð þá ekki var við þessa plöntutegund, en ég hafði aðeins skamma viðdvöl, svo vel má vera, að mér liafi sézt yfir hana. Af fundarstaðnum verður þó að telja líklegt, að um íslenzka plöntu sé að ræða, en ekki slæðing. Mér er ekki kunnugt um,að þessi tegund hafi fundizt hérlendis áður, svo ég ætla að lýsa lienni sluttlega: Þetta er smávaxin, snotur jurt. Þau eintök, er ég atlmgaði voru 4- 7 cm að hæð. Stöngullinn er mjúkhærður og ekki hnýttur um stöngulliðamótin. Blöðin eru stilkuð, egglaga lil langegglaga, frekar gróftennt og mjúkhærð, einkum á neðra borði. Krónan er ljósrauð, neðri vörin dálítið dropótt og krónupípan um það bil tvöfalt lengri en hikarinn. Leiðréttinjf. Framan á kápu síðasta heftis Náttúrufræðingsins (1942, h. 4) stóð: Fuglamerkingar II., en á að vera: Fuglanýjungar II.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.