Náttúrufræðingurinn - 1945, Side 8
150
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
með pjönkur okkar. Urðum að vaða Kverná og þótti hún köld, og
ennþá verra að stikla berfættir á grjótinu. Þannig fer oftast kyrr-
setumönnum fyrst í stað. — Um nóttina gisturn við á Ytri-Skógum
í góðu yfirlæti.
Laugardaginn 24. júlí. Lögðum af stað frá Skógum um 10-leytið
með 4 hesta undir trússum. Sleði og skíði voru á einum hesti, en
matarkassar, tjald, svefnpokar og fatnaður á hinum. Túnbrekkan
ofan við Skógabæinn er mjög brött og illt að fara þar upp með
óþægilegar klyljar, en úr því, að upp á brúnina er komið, verður
lieiðin sléttlend og greiðfær. Framan til í heiðinni eru grösugar
valllendisbungur og víða há moldarbörð, en síðan taka við greið-
f'ærir melar.
Við héldum upp með eystri kvísl Skógaár, sem kemur undan
jökuljaðrinum suðaustur af Fimmvörðuhálsi. Yfir kvíslina komumst
við á snjóbrú uppi undir jökli og stefnudum síðan sniðhallt upp jök-
ulinn, sem var allbrattur, en ósprunginn og hulinn snjó alveg ol'an
á jaðar. Námum við staðar á háhrygg jökulsins um 1 km. austur af
Fimmvörðuhálsi. Veður var kyrrt, en þokudrungi í lofti. Sást óglöggt
niður á norðurbrrm jökulsins, þar sem hann fellur fram af brattri
brún niður í innstu kverk Goðalands. Voru stórskornar jökulsprung-
ur á brúninni, en upp frá henni rís jökuldyngja sú hin mikla og
fagia, sem eg hafði áður séð af suðurbungu Mýrdalsjökuls. Mætti
ef til vill nefna hana Goðabungu. Hún er í austur frá Fimmvörðu-
liálsi. Sunnan við liana sá í slakka. Þar eru aðalupptök Sólheima-
jökuls. Flandan slakkans sá í vesturendann á suðurhrygg Mýrdals-
jökuls, upp af Klifandijökli.
Við settum nú sleðann saman. Það var nýr Nansenssleði, 2.5 m.
á lengd, bundinn saman með ólum úr svínsleðri. Á hann hlóðum
við öllum farangrinum, sem vóg um 200 kg., og héldum af stað
austur eftir jökulhryggnum í stefnu á Goðabungu. Fylgdarsveinn
okkar hélt heimleiðis með hestana. Vindur var hægur S og dálítil
þokusúld. Urðum við að klæðast olíufötum og sóttist seint dráttur-
inn, enda vorum við óvanir, en færi fremur þungt.
Um 6-leytið tjölduðum við skammt vestan við rætur Goðabungu,
eftir 2—3 km. göngu.
Sunnudaginn 25. júlí héldurn við úr tjaldstað um 10-leytið. Vind-
ur var hægur SA, hiti 3 stig og úðarigning. Eftir 3 km. göngu vorum
við komnir að rótum bungunnar og tók að þyngjast fyrir fæti. Herti
þá og veðrið, svo að við urðum að nema staðar. Var liiti kominn
niður á frostmark eða heldur undir og dálítill snjóhreytingur. Tók-