Náttúrufræðingurinn - 1945, Page 9
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
löl
um við nú að grafa okkur snjóhelli í jökulinn, því að tjaldið var ekki
sterkt og mjög þröngt í því fyrir fjóra. Við grófum fyrst urn B m.
djúpa grylju og holuðum íshelli inn úr henni, um 4 m.2 að vídd og
1.75 m. á hæð. Var þetta hið erfiðasta verk og sóttist seint, því að
snjórinn var þéttur fyrir og mörg liörð íslög í honum. Síðan gerðum
við hvelfingu úr snjóhnausum ylir gryfjuna, svo að einungis var
lítið op yfir tröpjtum, sem ujdjd úr henni lágu — undan veðrinu.
Veðrið harðnaði, þegar leið á daginn, og var kominn SA-stormur
(9 vindstig) með slyddu og snjókomu á vízl um þær mundir, sem
við höfðum lokið verkinu, en þá var kl. orðin 10 að kvöldi. Síðan
bjuggumst við fyrir í helli okkar og sofnaðist ágætlega.
Mánudaginn 26. júli var veðrinu slotað, en SA-kaldi, þoka og
súld hélzt allan daginn. Láguni við um kyrrt í snjóhellinum og höfð-
um notalega vist en frernur Jrrönga.
Þriðjudaginn 27. júlí snerist vindur til NA, og létti dálítið til urn
hádegisbilið. Þá var 3 si. liiti, en Jdó fjúkslitringur. Færi var slæmt.
Kl. 4 síðdegis var aftur komin þokusúld. Varð Jní eigi hugsað til
ferðar þann dag. Stækkuðum við ]>ví íshellinn og bjuggum betur
um okkur.
í upprofinu, sem varð eftir hádegið, mældi Steinjjór afstöðu frá
íshellinum á jökulbungurnar austur undan og Eyjafjallajökul.
Miðvikudaginn 28. júlí. Hæg SA-átt. Þokuruðningur á jöklinum
og rigning nteð köflum. Hiti 1—2 st. Um miðaftansbil greiddi til og
hætti að rigna. Bjuggumst J)á til ferðar og héldum af stað kl. 8 sd.
í stefnu á Goðabungu. Reyndist hún brött, og sjtrungur allmiklar
voru til trafala. Þegar við vorum komnir langleiðis upp á bunguna
setti aftur yfir þokusúld. Héldum áfram austur yfir hábunguna eftir
áttavita. Tók smám saman að halla undan fæti. Kl. eitt um nóttina
námum við staðar og tjölduðum á sléttu hjarni í kolsvartajioku og
hægviðri. Höfðum þá gengið um 10 km. frá íshellinum.
Fimmtudaginn 29. júli. Kl. 8 um morguninn vöknuðum við við
sólskin á tjaldinu, en slíkri morgunheimsókn vorum við orðnir
óvanir. Úti var logn og heiðmyrkur. Sólskin. en Jioka í kring, — loft-
vog sýndi Jiarna ujijií 643 mm., og svarar það til h. u. b. 1200 m.
hæðar yfir sjávarmál, liiti var 1 st. í lofti en -^-0.8 í snjóskorpunni.
Við héldum okkur heima við tjaldið, þurrkuðum föt okkar og
viðruðum svefnjroka, sem voru orðnir rakir eftir vistina í íshellin-
um. Annað veifið svifaði jDokan svolítið til, og grillti Joá í jökulbungu
h. u. b. í háaustri (misvísandi), og aðra í suðaustri. Um miðaftans-
bil rofaði til, og héldum við þá af stað lausgangandi austur á bung-