Náttúrufræðingurinn - 1945, Page 18
160
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
sandur var að myndast. í gömlum heimildum eru ógreinilegar
sagnir um hlaup úr Sólheimajökli árin 930, 1245 og 1262. Má ætla,
að Katla hafi verið þar að verki, og eldvarpið þá verið lítið eitt vest-
ar en síðan helur verið. l>á væri engan veginn óhugsandi, að gos liefði
orðið í austanverðum Fimmvörðuhálsi eða þar austur af. Hálsinn er
eldbrunninn mjög, og í austasta „múlanum“ virðist vera allstór eld-
gígur.
Önnur ferð til Mýrdalsjökuls 1943
Hlaðin mœlingavarða
Föstudaginn 13. ágúsl. Við Steinþór Sigurðsson og Einar Pálsson
gerðum skyndiferð austur að Kölujökli til að kynna okkur staðhætti
við framanverðan Kötlujökul og upp með honum að vestan, þar sem
við höfðum ekki séð yfir, þegar við vorum uppi á hájöklinum.
Við l'órum með áætlunarbíl til Víkur, komum þar að kvöldi dags
og fengum leyfi til að tjalda á sandgræðslusvæði vestan við þorpið,
rétt undir Reynisfjalli. Var melblaðkan þar vel í hné.
Laugardaginn 14. ágúst. ók Brandur Stefánsson veitingamaður
með okkur, eins og leið liggur, austur að Múlakvíslarbrú. l>ar skild-
um við tjald og farangur eftir, en síðan ók Brandur með okkur alla
leið að vesturhorni Hafurseyjar. Þar sneri liann heimleiðis, en hét
að senda bíl eftir okkur á mánudagsmorgun snennna.
Vindur var NA-stæður þennan dag, kalt í veðri og mökkur á jökl-
inum niður í 800—1000 m. hæð að sunnanverðu, en úrkoma ekki
teljandi.
Við gengum nú austur með Hafursey að norðan. Vesturlilíð henn-
ar er þverhníptur móbergshamar, og féllu vatnslænur sums staðar
alveg upp að berginu, svo að við urðum að vaða þær til að konrast
norður með eynni. „Sandvatnið" leikur þarna á breiðum aurum,
milli Hafurseyjar og Vatnsrásarhöfða, suðvestur í farveg Múla-
kvíslar. Fyrir Kötlugosið 1918 féll Sandvatnið fram sandinn vestan
Hafurseyjar. — Norðvestan í Hafursey eru brattar brekkur og tals-
verður gróður í þeim. Frá N-horni hennar liggur um 20 m. há, kol-
svört vikuralda f boga til NNV upp að jökli, en á þeim slóðum eru
lágir linúkar í jökuljaðrinum og fram úr honum. Mun það vera af-
réttarland það, sem forðurn var kallað Moldheiði, en hún var jökli
hulin á dögum Sveins Pálssonar.
Kcitlujökull er allbrattur að franranverðu og svartur af aur og