Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1945, Side 22

Náttúrufræðingurinn - 1945, Side 22
164 NÁTTÚRUFR/EÐINGURINN ar upp fyrir sprungubeltið upp í sléttan snjóhvamm undir allbrattri brekku. Þar reistum við tvö tjöld, átum hafragraut, smásteik og kjötseyði. Tókum á okkur náðir laust eftir miðnætti. Veður stillt, en þoka í lofti. 11. sept. Sóttum stikurnar og drógum þær upp fyrir aðalbrekkuna ú jöklinum. — Við þetta verk lirataði eg í þrönga jökulsprungu og meiddi mig í fæti, svo að eg dugði lítt við dráttinn, það sem eftir var dagsins.— Veður var milt og lijart hið efra, en neðar í hlíðunum var skýjamökkur, og síðar fréttum við, að talsverð rigning liefði ver- ið niðri í byggðinni um daginn. Um kvöldið tjölduðum við sunnan undir jökultagli, senr gengur fr;i Vesturbungu fram með Sólheima- jökli sunnanverðum. I myrkri um kvöldið drógum við stikurnar upp á hátaglið og skildum þær þar eftir. 12. sept. Úrhellisrigning allan daginn, en stillt veður. Lágum um kyrrt í tjaldstað II. 13. sept. Sæmilegt veður, en dumlmngslegt. Héldum af stað með hafurtask okkar upp fyrir jökultaglið. Þegar upp kom á brúnina, tók að snjóa, og færi gerðist þungt. Snjó hafði sett niður á hájökul- inn bæði í N-lireti um miðjan ágústmánuð og síðustu daga hafði ýmist rignt þar eða snjóað. Var jökullinn því skjöldóttur, — hvítar fannir skiptust á við brúnleita, ,,rykfallna“ bletti, þar sem sást í yfir- borðið frá sumrinu. Eftir að við höfðum sett upp eina stöng, 5 m háa með þrem stögum, nálægt jökuldeilunum (Kötlu- og Sólheima- jökuls), héldum við áfram eftir áttavita í svartaþoku og muggu, unz við völdum okkur tjaldstað. Var kl. þá um 15. Við settunr upp tvö tjöld í snatri, en tókum síðan að grafa snjó- gryfju þar rétt hjá. Hélzt stöðugt svartaþoka og snjómugga, en hiti var um frostmark. Var grafið niður í 5 m. dýpt án þess að finna greinilegt árslag. — í 3 m. dýpt var þunnt, brúnleitt snjólag, sem líktist lagi því, er við fundum í 4 m. dýpt í gryfju þeirri, er við grófum 30. júlí. Hefði leysíng því átt að vera um 100 m. í ágústmán- uði, og má það mjög sennilegt teljast. (Hins vegar hafa athuganir á sömu slóðunr sumarið 1944 gert það nrjög vafasamt, að þarna hafi í raun og veru verið unr ársmörk að ræða. Er við höfðum lokið gryfjunni, holuðunr við snjóhelli inn úr einni ldið hennar til þess að geta leitað þar skjóls, ef veður yrði mjög slæmt. Um nóttina var vindur hvass SA nreð snjókomu. Tjöldin stóðu ágætlega, enda voru sterkar súlur í þeim úr harðviði, og um kvöldið hlóðunr við duglega snjógarða umhverfis þau.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.