Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 25
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
1()V
23. sept. Eg var eftir til að hagræða farangrinum og binda í bagga.
Fylgdarmaðúr kom upp eftir laust eftir hádegi, en ekki komumst
við af stað fyrr en undir kvöld og lentum í þoku og myrkri, svo að
ekki var komið í Sólheimakot fyrr en kl. 23.15.
Næsta dag var eg urn kyrrt í Sólheimakoti til þess að þurrka far-
angurinn, en fékk bílferð til Reykjavíkur seint um kvöldið og kom
suður snennna unr morguninn hinn 26. sept.
Kötluferðin 1.—15. ágúst 1944
Þátttakendur í förinni vorum við Steinþór Sigurðsson, Einar Páls-
son, Árni Þ. Árnason, Árni Stefánsson og Franz Einarsson.
Menntamálaráð veitti fjárstyrk, til þess að unnt væri að halda
rannsóknunum áfram.
Auk venjulegs útbúnaðar af fatnaði o. s. frv. höfðum við tvo sleða,
tvö tjöld og unr 70 nr. af hefluðum mabelstöngum li/oX^A þuml-
að gildleika. Allur farangur vóg um 400 kg.
Þriðjudaginn 1. ágúst. Frá Reykjavík með áætlunarbíl frá Hellu
og komum undir kvöld að Sólheimakoti. Vindur var alllrvass A unr
daginn og veður dumbungslegt, en ekki teljandi rigning fyrr en
komið var fyrir Seljalandsmúlá. Þar og austur með Fjöllunum var
austanslagviðri.
Miðvikudaginn 2. ágúst. Urhellisrigning allan daginn. Unr kyrrt
í Sólheinrakoti.
Fimmtudaginn 3. ágúst. Hæg S-átt. Skúrir franr eftir degi. Birti til
hafsins nreð kvöldinu. Ákveðið að búast til ferðar kl. 2 unr nóttina.
Föstudaginn 4. ágúst. Unr nóttina var veður allgott, en dunrbungs-
legt, með lrægri S-átt. Ákveðið að leggja upp, þótt veður væri tví-
sýnt. Héldunr af stað kl. 5 nreð 8 liesta undir klyfjunr og 6 menn
til fylgdar, til að draga sleðana með okkur upp jökulbrekkurnar, ef
hestarnir kænrust ekki alla leið.
Kl. 8.30 vorunr við komnir upp að jökli — á sanra stað og árið
áður — í h. u. b. 1100 nr. lræð. Var þar þokusúld nokkur. Ofan við
skerið (,,Leiðarkanrb“) tók að rigna. Jökullinn var auður og allháll
sunnan í „Bröttukinn," eins og fyrri daginn, en hestarnir gátu samt
gengið sniðhallt þar upp éftir án þess að skripla. Síðan varð leiðin
greiðfarin, og var viðstöðulaust lialdið áfrattr til kl. 12.30, er við
vorum komnir á sönru slóðir og þar, senr við tjölduðunr í sept. 1943.
Var þá enn S-gola og þokusúld, en ekki nrjög dimnrt. Sást 2—3 knr.
nreð köflum. Þar sneru fylgdarnrenn senr hraðast aftur, því að sumir