Náttúrufræðingurinn - 1945, Qupperneq 29
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
171
Árni var tekinn að hressast
um morguninn, en hafði þó
verk fyrir bringspölum vinstra
megin og varð að halda kyrru
fyrir.
Eftir hádegið reistum við
turninn, og var því verki lokið
kl. 21. Var þá hæg SA-átt með
þokusúld og 2 st. hita.
Turninn er þrístrend tré-
grind, styrkt með krossstögum
úr tjörubornu snæri. Hæðin
er rúmir 12 m., þar af eru um
2.5 m. grafnir í snjó, en 10.6
m. stóðu upp úr, þegar gryfjan
hafði verið fyllt. Var turninn
grafinn svona djúpt til þess að
gera fyrir væntanlegri leys-
ingu til haustsins. Á hverri
liornstöng eru fjögur stög, og
eru endar þeirra festir í tré-
liæla um 250 cm. niðri í snjónum.
Miðvikudag 9. ágúsl. Kl. 9 um morguninn var NV-andvari, lieið-
myrkur, dálítil súld og 3 st. liiti. í N-átt var þokuregnbogi, bláhvítur
á innra borði, en reykbrúnn á ytra borði.
Árni og Franz héldu af stað til byggða upp úr hádeginu. Síðan
færðum við tjöldin um 20 m. til vesturs, því að þau stóðu nú orðið
á hávaða vegna leysingar þeirrar, sem átt hafði sér stað, síðan við
komum. Um kvöldið gerðum við vatnsmælingar á snjónum í gryfj-
unni. Líta þær þannig út í aðalatriðum:
I. 25 cm. undir yfirborði 4. ágúst: Vatnsgildi 59.0%
11. 45 — Grófur, þéttur snjór: - 04.0%
III. 85 — Snjór: - 60.5%
IV. 180 — Snjór, harður og ísborinn: - 07.0%
V. 230 — Þéttur snjór: - 64.5%
VI. 345 — Snjór milli tveggja þykkra islaga: Meðaltal: 62.5% 62.9%
.. 1 urninn," eins og gengið var frá honuni
8. ágúst 1944. (Ljósra.: St. Sig.).
Er þetta nokkru hærra en tilsvarandi tölur frá Vatnajökli vorið
1936, og er það skiljanlegt, að snjórinn sé vatnsbornari, þegar líður