Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 35
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
177
skapi. Á óskalista flugvélafræðinganna hefur lengi staðið að byggja
stóra flugvél með mörgum hreyflum, knúnum af rafmótorum og
aðeins einum stórum benzín- eða hráolíumótor einhvers staðar á
heppilegum stað í bolnum. Þetta fyrirkomulag hefur rnarga kosti,
en framkvæmdirnar hafa strandað, aðallega vegna þunga rafmótor-
anna. Með því að nota silikon-einangrun, má fá helmingi léttari
mótora, en ]>að ætti að vera nóg til þess að slíkar flugvélar gætu borg-
að sig.
Á einu sviði enn eiga silikon-efnin eflaust eftir að ryðja sér til
rúms, en það er sem smurningsolíur. Það er hægt að fá fram alla
milliliði, frá kvoðu á þykkt við vaselín, til þunnfljótandi vökva.
Mesti kosturinn við þessar silikon-smurningar er, hve óháðar þær
eru hitanum. Smurningsfeitin stífnar ekki við 40° frost og bráðnar
ekki við 400° hita. Smurningsolían flýtur enn við 100° kulda, en
allar venjulegar smurningsoliur eru Irosnar löngu áður. Þessar
smurningsolíur eru sérstaklega vel fallnar til notkunar í flugvélum,
sem ef til vill á fáum mínútum stíga upp frá steikjandi lieitum flug-
velli einhvers staðar í hitabeltinu og alla leið upp í háloft, þar sem
hitinn er 50° undir frostmarki eða ennþá lægri.
Silikon-gúm hefur ennþá ekki náð sömu fullkomnun og venjulegt,
tilbúið gúm, en ef það tekst að fá það fram, þá ma líka búast við sér-
lega góðum árangri. Þegar hjólbarðar úr venjulegu gúmi slitna og
ganga úr sér, er ein af aðalorsökumunum liiti sá, sem fram kemur
í hjólbarðanum við aksturinn. Nú má búast við því, að hitabreyt-
ingar hafi tiltölulega li'til áhrif á silikon-gúmið eins og aðrar teg-
undir silikon-efnanna. Hjólbarðar úr slíku gúmi þola því vel upp-
hitunina og ef silikon-gúm verður fundið, á annað borð, þá er ekki
ólíklegt, að úr því megi gera hjólbarða, senr séu svo endingargóðir,
að þeir endist á við hvaða bíl sem er. Á núverandi stigi er silikon-
gúmið að flestu leyti svipað venjulegu gúmi, en vantar þó einn mik-
ilvægan eiginleika og það er að þola teyju. Ef teygt er á því slitnar
það mjög auðveldlega og þessvegna er ekki hægt að nota það í hjól-
barða. Þeir sem hlut eiga að máli eru þó vongóðir um, að eftir frek-
ari rannsóknir verði hægt að ráða bót á þessum galla og að þeim
muni takast: að frantleiða gúm með áður óþekktum gæðum.
Eflaust eiga silikon-efnin eftir að ryðja sér til rúms á mörgum
öðrum sviðum. Það er t. d. ekki ólíklegt, að eldföst klæði verði ofin
úr siliþonþræði. Enn er silikon aðeins framleitt í kílóatali, en ni'i
hafa verið byggðar verksmiðjur sem brátt munu framleiða þessi
merkilegu efni í tonnatali og gera almenningi mögulegt að verða
aðaðnjótandi hinna ómetanlegu kosta þeirra.
12