Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 46

Náttúrufræðingurinn - 1945, Síða 46
188 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN heldur verkunum sínurn, hve það er ódýrt í framleiðslu og svo hin feiknamikla verkun þess á fjölmörg skaðræðis skordýr. Efnið er hvítt, lyktarlaust duft, það leysist ekki upp í vatni, en hinsvegar vel í vínanda og acetone. Fyrst verkar það örvandi á skordýrin, en síðar lamar það taugakerfi þeirra og veldur dauða. DDT má auð- veldlega framleiða úr alþekktum efnum. Sem lúsavarnameðal er það mjög stórvirkt og nægir að strá því í fötin og heldur það verk- unum sínum í þeim í mánuð þótt fötin séu þvegin vikulega. Sé því úðað á veggi, strádrepur það allar flugur og önnur skordýr um fjögurra mánaða skeið. Ennig hefir verið reynt að setja DDT í máln- ingu innanhúss og hefir það reynst vel við sumar tegundir málning- ar. í botnfarfa á skip hefir DDT reynst ágætlega til Jress að varna Jrví að hrúðarkarlar og önnur sjávardýr setjist á skipsbotna og bryggjustaura. Mönnum verður ekki meint að DDT nema ef stórir skannntar af Jdví fara ofan í þá. Fram til Jressa liefir DDT ekki fengist á frjálsum markaði, Jjví að herstjórnirnar hafa setið fyrir Jdví öllu. Brátt mun þó úr rætast og ættum við íslendingar þá að leggja í gjöreyðingar styrjöld við þjóð- ar-ófögnuð okkar, lúsina. En auk þess mun DDT reynast mikilvægt liér á landi til þess að halda niðri og eyða kálflugum og öðrum skaðræðis-skorkvikindum innan húss og utan. ,S. Þ. Reikistjarnan Saturnus er um Jiessar mundir mjög auðþekkt á kvöldhimninum. Er hana að finna í tvíburamerki, skammt austan við stjörnumerkið Orion, sem margir kannast við. Saturnus er sér- stök meðal stjarnanna vegna hringa þeirra, sem umlykja hana. Hringarnir eru ósýnilegir með berum augum og vissu menn ekki um þá fyrr en eftir uppgötvun sjónaukans. Galilei sá þá fyrstur manna árið 1610, án þess þó að geta greint að um hringa væri að ræða, það tókst fyrst Huygens árið 1655. Telja stjarnfræðingar að hringarnir séu myndaðir úr tunglum Saturnusar, sem splundrast hafi vegna of mikillar nálægðar Jjeirra við Saturnus sjálfa. Þess má geta að á sömu slóðum og Saturnus er nú, en litlu austar er reikistjarnan Mars, sem auðþekkt er á liinum rauða lit sínum. Annars eru reikistjörnurnar auðþekktar frá fastastjörnunum á |>ví að skin reikistjarnanna er rólegt og stöðugt, en skin fastastjarnanna er tindrandi og tifandi. Kápumyndin: Jökull í Kötlukverkiniú. Kötlukollur eystri í baksýn. Steinþór Sigurðs- son lók myndina.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.