Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1952, Qupperneq 6

Náttúrufræðingurinn - 1952, Qupperneq 6
52 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN son, magister, til að þýða hann. Þess er þó að geta, að lýsingar Her- berts eru endurritaðar að mestu í króníku mikilli, sem rituð er af öðrum cisterciensamúnki, Alberic að nafni, í klaustrinu Troisfon- taines í Frakkiandi. Sú króníka mun rituð á fimmta tug 13. aldar (hún nær fram til 1241). í ritgerð, sem sá íslandsfróði fræðaþulur, Konrad Maurer, skrifaði 1894 ognefndi Helvíti á íslandi (Die Hölle auf Island), rekur hann að nokkru frásagnir Alberics um Heklu.bæði þær sem hann hefur frá Herbert og aðrar, sem hann hefur frá cistercíensum í Svíþjóð (cistercíensar virðast liafa haft sérstakan áhuga fyrir Heklu), og eftir Maurer tekur Þorvaldur Thoroddsen þetta svo upp í viðaukakafla við fyrsta bindi Landfræðisögu sinnar og þýðir þar að miklu leyti það, sem Alberic hefur ritað eftir Her- bert. Þorvaldur hefur það eftir Maurer, að rit Herberts sé frá miðri 12. öld, og hið sama segir Paul Hermann í bók sinni: ísland. En enginn þessara manna virðist hafa dregið af þessu þá ályktan, að væri rit Herberts svo gamalt, gæti frásögn hans af Heklugosi ekki átt nema við eitt Heklugos, nefnilega hið fyrsta, og því sérstök ástæða til að athuga hana nánar. Líklega hefur Þorvaldi verið ókunnugt um, að rit Herberts væri enn til. Hér fer á eftir frásögn Herberts óstytt í þýðingu Jakobs Benedikts- sonar. Meðfylgjandi myndir eru smækkaðar myndir af textasíðun- um 107v og 108r í Múnchen-handritinu. Frásögnin um ísland byrjar þar á orðunum de Inferno Hyslandie og endar á orðunum effugere co?itempnunt. „Um vít.i á íslandi. Norður í heimi er vitað um stóra eyju, sem kölluð er ísland (liys- landia) og tekið hefur kristna trú. Á henni er fjall nokkurt bratt og geysimikið, sem tekur yfir mikinn hluta landsins, en undir því og í því telja íbúarnir, að sé hið mesta víti. Fjall þetta er allt fullt af hell- um og holt að innan, brennur allt og spýr logum, og stendur í sí- felldu eldsbáli, sem læsir sig um og eyðir fjallið að utan og innan allt niður að rótum og jafnvel út fyrir fjallsræturnar. Örugg merki sanna sem sé, að þessi skelfilegi eldur lifir og æðir ekki aðeins undir rót- um fjallsins, heldur einnig undir mararbotni. Hinn nafnfrægi eld- ketill á Sikiley, sem kallaður er strompur vítis, — en þangað eru dregnar sálir dauðra, fordæmdra manna til brennslu, eins og oft hefur verið sannað, — hann er að því, er menn fullyrða, eins og smá- ofn í samjöfnuði við þetta gífurlega víti. Innan í þessari hræðilegu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.